Þetta var alveg að fara með mig

Hjördís Guð­munds­dóttir er með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn Alopecia areata sem veldur því að hún missir hárið. Hún seg­ist fyrst hafa verið mjög brotin og ekki fund­ist hún eins mikil kona og áður; henni fannst hún missa kven­leik­ann við að missa hárið. Henni finnst það ekki lengur. Hjördís segir að hún sé sterk­ari í dag en áður.

Þetta var alveg að fara með mig

„Ég var rosa­lega brotin fyrst. Og mér fannst ég ekki vera eins mikil kona og áður,“ segir Hjördís Guð­munds­dóttir, sem var 25 ára þegar hún fékk fyrsta skalla­blett­inn. Síðan þá hefur hún gengið í gegnum erf­iðar til­finn­ingar sem tengj­ast sjálfs­mynd þeirrar konu sem missir hárið.

„Ég hafði ekk­ert miklar áhyggjur af þessu; ég var þá búin að eign­ast þrjú börn og barn­eignum getur oft fylgt mikið hár­los og það geta alveg komið svona blettir. Ég fór reyndar til læknis út af þessu og fékk stera­á­burð og þetta gekk til baka. Hárið fór svo að þynn­ast í hnakk­anum þegar ég var 32 ára. Það fóru að koma litlir blettir sem stækk­uðu. Svo fór að vaxa hár í þeim og þá fóru að mynd­ast blettir ann­ars staðar. Svona var þetta í mörg ár þar sem kom hver blett­ur­inn á fætur öðrum, þeir stækk­uðu, hárið óx aftur í þeim og stundum náðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Konur sem missa hárið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár