Mynd: Heiða Helgadóttir

Með blóm á heilanum: Græna skrímslið hans Eggerts

Stór og kraft­mikil mynd af mosa­breiðu er til sýnis á Kjar­vals­stöðum. Liturinn er stór­feng­legur og hefur svipuð áhrif og að sjá regn­votan dýjamosa sem breiðir sig yfir hraunið í nátt­úr­unni. Skær­límónu­lit­aður líkt og fótó­sjopp­aður sé. Myndin sogar þig inn í sig og þú týnir þér í öllum smá­at­rið­unum. Hund­ruðum blóma sem vaxa í dýjamosa. „Ég kalla það Græna skrímslið.“

Hill­billy situr með Eggerti Pét­urs­syni á vinnu­stof­unni í kjall­ar­anum á heim­ili hans. Þar eru alls kyns ger­semar á að líta, mál­verk í vinnslu, bækur og fín­asta plötu­safn og spil­ari í stíl. Stór og kraft­mikil mynd á veggnum af mosa­breiðu og í augna­blik skynjar augað ekk­ert annað en hana. „Þetta er bara dýja­mosi,“ segir Eggert. Liturinn er stór­feng­legur að mati Hill­billyar, og hefur svipuð áhrif og að sjá regn­votan dýjamosa sem breiðir sig yfir hraunið í nátt­úr­unni. Skær­límónu­lit­aður líkt og fótó­sjopp­aður sé. Myndin sogar mann inn í sig og maður týnir sér í öllum smá­at­rið­unum. Hund­ruðum blóma sem vaxa í dýjamosa. „Verkið er alveg satt og rétt,“ segir Eggert. Hill­billy veltir því fyrir sér hvort það sé mik­il­vægt fyrir Eggert að mála mynd­irnar vist­fræði­lega rétt. „Ekkert endi­lega,“ svarar Eggert, „það er eng­inn dýja­mosi í þess­ari mynd í raun og veru. Þetta er bara mál­verk, erfitt verk. Ég kalla það Græna skrímslið.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár