Þrír mánuðir verða að fimm árum

Hill­billy heim­sótti Skarp­héðin Berg­þóru­son og Árna Má Erlings­son í Gallery Port á Lauga­vegi 23 sem fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Gallery Port kom óvænt upp í hend­urnar á drengj­unum og stóðu þeir í trú um að rýmið yrði rifið eftir þrjá til fjóra mán­uði. Það var eins gott því ann­ars hefðu þeir ekki farið út í þetta, að eigin sögn. Hér eru þeir enn, fimm árum síðar, og hafa nostrað við rýmið sitt og fyllt það af lífi dag eftir dag í hátt í 2.000 daga, haldið yfir 100 sýn­ingar og við­burði.

Þrír mánuðir verða að fimm árum

Hill­billy byrjar venju sam­kvæmt á byrj­un­ar­reit og vill vita hvort list hafi verið í kringum þá Skarp­héðin og Árna Má þegar þeir voru að alast upp. Hvorugur segir svo hafa verið, „ekki mynd­list en mikið bók­mennta­tengt, sem er nátt­úr­lega nátengt mynd­list,“ segir Skarp­héð­inn og þræðir sína sögu fyrir Hill­billy. Hann ólst upp í Holtunum, í kringum Mynd­lista- og hand­íða­skól­ann, svo hann „sá alveg mynd­list. Fór í mynd­mennt og á Kjar­vals­staði og annað slíkt en mynd­listin kom ekki inn fyrr en ég byrj­aði í Portinu, fannst áður eins og þetta væri frekar lokað svæði, mynd­listin,“ svarar Skarp­héð­inn. Skarp­héð­inn er skáld og nú orð­inn mynd­list­ar­maður eftir fimm ára nám í Gallery Port, sem er lík­lega eitt besta nám í mynd­list sem hugs­ast getur. En í upp­eldi Árna, ætli þar hafi verið gluggi inn í mynd­list? „Ekki í mínu til­felli, sú eina sem ég veit að hefur verið í mynd­list er dóttir systur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár