Björgunarsveitarmaður
Björg­un­ar­sveit­ar­maður Meðlimir í björg­un­ar­sveitum á svæð­inu báðu fólk að yfir­gefa svæðið upp úr klukkan 10 í gær­kvöldi. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Það rigndi „gulli“ við eldgosið

„Einstak­lega falleg“ vikurkorn bárust úr eldgosinu í Geldinga­dölum í gær eða nótt. Nornahár fundust í mosanum. Fólkið myndaði ljósarás frá gígnum.

Eldgosið í Geldinga­dölum skartaði sínu fegursta í gærkvöldi og fólkið sömuleiðis. Ljósa­dýrðin af mann­mergðinni sem yfirgaf gossvæðið í einni rás að beiðni sjálfboða­liðanna í björgunar­sveitum  blandaðist saman við rauð­litaðan og appelsínu­gulan himininn. Boðað hefur verið að lokað verði fyrir aðgang að eldgosinu á morgun, laugardag.

NornahárEld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópur Háskóla Íslands birti þessa mynd af norna­hárum nærri gígnum í Geld­inga­dölum.

Í gær eða í nótt átti sér stað fyrsta ösku­fallið við eldgosið, samkvæmt Eldfjalla­fræði og náttúruvár­hópi Háskóla Íslands. Eldfjalla­fræðingarnir Ármann Höskuldsson og Þorvaldur Þórðarson fundu gyllt gjall austan við gosstöðvarnar, mest um sentí­metri hvert korn. „Gjósku­fallið, þar sem það er svo gott sem samfelld þekja, myndar mjóan geira sem nær yfir hraunið austan gígana og nokkra tugi metra upp hlíðina á móti,“ segir í færslu hópsins. Þess ber að geta að gasið af gosinu hefur undan­farið borist í austurátt undan vestan­áttinni og því ekki verið aðstæður fyrir fólk að dvelja þar við. Á páskadag er hins vegar spáð norðanátt sem leiðir gasmengun hugsanlega suður yfir hluta núverandi göngu­leiðar.

Þá segir að gjóskan sé „einstak­lega falleg, gulllituð vikurkorn (e. Golden Pumice), sem í raun eru frauð með þétt­pökkuðum smáum hringlaga blöðrum. Í sumum tilvikum eru blöðrurnar marghorna, sem er vitnis­burður um þroskuð froðu.“

GjalliðÁ með­fylgj­andi myndum frá jarð­fræð­ingum á svæð­inu sést gyllta gjallið, vik­ur­inn, nefndur „Golden pumice“ á ensku.

Svokallað nornahár hefur um leið fundist, sem „myndast þegar kvikan er teygð út í örmjóa strengi, líkt og þegar „deigt toffí“ (þ.e. karamella) er slitin í sundur og dregin út.“ Fyrir­bærið verður til þegar gasstreymi teygir á kviku í örþunn hár, líkt og glerull. Nornahár geta veðrast auðveldlega og horfið við ágang fólks.

Um klukkan 10 í gærkvöldi vísuðu björgunar­sveitir fólki af svæðinu, líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum og mynd­böndum. Blíðskapar­veður var en færi á köflum erfitt. Leðja er á stórum hluta göngu­leiðarinnar, mest í dalnum suður af, og í bröttum brekkum er sums staðar þunnt lag af lausamöl ofan á klöpp, sem kippir auðveldlega fótunum undan ferða­löngum. Ekki er lengur gengið upp þar sem reipi hafði verið komið fyrir, sem varð umdeilt vegna áhyggja af því að það bæri með sér covid.

Almenningi verður meinaður aðgangur að svæðinu á morgun vegna þess að spáð er roki og rigningu og jafnvel hríð. „Það má segja að þetta komi sér ágætlega því álag á björgunar­sveitarfólk og viðbragðs­aðila hefur verið gríðarlegt undan­farna daga og í sjálfu sér er þetta kærkomið. En það er stefnt að því að opna svæðið síðan aftur á páskadags­morgni klukkan sex,“ sagði Gunnar Schram, yfir­lögreglu­þjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við RÚV. 

Þrátt fyrir að allt fólk væri farið af svæðinu í gærkvöldi var enn fram eftir nóttu björgunar­sveitarfólk frá Vestfjörðum við göngu­leiðina að gosinu og sömuleiðis björgunar­sveitarfólk við Suðurstrandarveg.

Gosið í gær­kvöldiEkki er vitað hvenær fyrsta ösku­fallið varð en talið er að það hafi verið í gær eða í nótt.Jón Trausti Reyn­is­son
Streymið af gos­s­töðv­unumUndir lok kvölds var stöð­ugur straumur fólks niður stíg­inn sem gætt var af björg­un­ar­sveit­unum.
Björg­un­ar­sveitin lokarSumir þeirra síð­ustu höfðu týnt eigum sínum og leit­uðu þeirra við hraunið. Björg­un­ar­sveit­ar­fólk ræðir hér við við­stadda um brott­för.
Björg­un­ar­sveit­ar­maðurEinn af þeim sem fylgdi því eftir að fólk færi frá gos­s­töðv­unum fyrir nótt­ina.
LokunBjörg­un­ar­sveitir lok­uðu fyrir bíla­um­ferð á Suð­ur­strand­ar­vegi skammt vestan við afleggjara að Vig­dís­ar­völlum frá klukkan sex í gær.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið undanfarið ár