„Ég bið fólk að horfa á sólina rísa“

Pálmi Matth­í­as­son segir mik­il­vægt að rækta von­ina. Þegar fólki líði illa sé hægt að benda því á leiðir til að finna gleð­ina og taka lítil skref í einu í átt að ham­ingj­unni, sem býr að hans mati í þakk­læt­inu.

„Ég bið fólk að horfa á sólina rísa“
Engin lækn­ing við sorg Sr. Pálmi segir að fólk þurfi í fyrsta lagi að gera sér grein fyrir því í upp­hafi að það er ekki til lækn­ing við sorg en það séu til margar leiðir til að bera hana. Mynd: Heiða Helgadóttir

Séra Pálmi Matth­í­as­son signir sig að morgni hvers dags, þakkar fyrir að hafa fengið að vakna og heilsar deg­inum. Þetta gerir hann til þess að við­halda ham­ingju í eigin lífi og stuðla að réttu við­horfi. „Í mínum huga byggir ham­ingjan á þakk­læti. Mér finnst skipta öllu máli að höndla ham­ingj­una, vera þakk­látur og taka líf­inu ekki sem gefnu, heldur líta á það sem undur að fá að vakna á morgn­ana, geta hreyft hend­urnar og fæt­urna, snúið höfð­inu, opnað augun, talað, hlustað og virki­lega tekið á móti líf­inu og gert það út frá þakk­læti. Ef maður nær að þakka fyrir þessa þætti og telja þá ekki sjálf­gefna þá er eins og vit­undin dýpki og ham­ingjan verður meiri og dýpri.“ 

Þar af leið­andi hefur hann til­einkað sér að þakka fyrir hvern dag. „Ég tek á móti deg­inum að morgni og mér finnst hann alltaf vera stór­kost­leg gjöf. Og ef maður temur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár