Frá 15. janúar hefur verið í gildi reglugerð um að einstaklingar með vottorð um bólusetningu gegn Covid-19 sem koma frá löndum innna EES-svæðisins séu undanþegnir skimun. Hið sama hefur verið upp á teningunum varðandi þá sem koma frá löndum utan EES og eru með bólsetningarvottorð frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Frá 10. desember hefur verið í gildi reglugerð sem undanþegur fólk frá skimunum á landamærunum, hafi það vottorð um fyrri sýkingu, og er þá um að ræða fólk innan EES-svæðisins. Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra 13. mars lagði Þórólfur til að hið sama myndi gilda fyrir fólk utan EES.
Þórólfur tiltekur að ákvörðun dómsmálaráðherra um opnun ytri landamæra Schengen fyrir öllum með vottorð sé ákvörðun sem hann hafi ekki haft aðkomu að.
Athugasemdir