Hvernig albanska mafían sigraði heiminn

Albanía er að breyt­ast í mafíu­ríki og vax­andi umsvif alþjóð­legra albanskra glæpa­hópa vekja ugg lög­reglu­yf­ir­valda um allan heim sem segja þá nýta sér Schengen-aðgang í illum til­gangi. Þeim hefur á örskömmum tíma tek­ist að sölsa undir sig glæpa­veldi sem tók aðra hópa ára­tugi að byggja upp. Styrkur þeirra bygg­ist á óbilandi tryggð sem á djúpar rætur í menn­ing­ar­arfi og fjöl­skyldu­tengslum.

Hvernig albanska mafían sigraði heiminn
„Hellbainianz“ Albanskt gengi sem hefur flíkað lífs­stíl sínum og vopnum hefur verið til umfjöll­unar í breskum miðlum. Samkvæmt fjöl­miðlaum­fjöllun höndla þeir bæði með heild­sölu fíkni­efna og stunda gengja­starf­semi. Mynd: Instagram

Uppruni albönsku þjóð­ar­innar er dul­ar­fullur og enn í dag eru skiptar skoð­anir meðal fræði­manna um nákvæm­lega hverjir for­feður þeirra voru. Albanir koma fyrst skyndi­lega fram á sjón­ar­sviðið sem kristin þjóð á ell­eftu öld, sam­kvæmt heim­ildum frá Býsans­veldi þess tíma. Engar öruggar heim­ildir er að finna um tungu­mál þeirra fyrr en á fimmt­ándu öld en það virð­ist skylt fornum tungum sem tal­aðar voru á Balkans­skaga langt aftur í aldir. 

Nútíma­rann­sóknir á gena­mengjum sýna að Albanir eru sú Evr­ópu­þjóð sem er hvað minnst blönduð öðrum þjóðum. Samkvæmt fornum hefðum byggði sam­fé­lag þeirra mjög á nánum blóð­tengslum sem mynd­uðu órjúf­an­lega sam­stöðu gegn þeim fjöl­mörgu óvin­veittu nágrönnum sem þeir þurftu að kljást við í gegnum ald­irnar. Eitt mik­il­væg­asta hug­takið í albönsku máli er „besa“ sem mætti þýða sem sam­stöðu eða tryggð en hefur mun dýpri og víð­tæk­ari þýð­ingu í raun.  

Í stuttu máli sagt þýðir besa að heiður þinn og fjöl­skyldu þinnar er í húfi ef þú verður upp­vís að því að ljúga að þínum nán­ustu eða tekur ekki sterka afstöðu með þeim gegn utan­að­kom­andi fólki. Sjálft líf þitt er í húfi ef þú gengur á bak orða þinna gagn­vart ætt­ingjum.  

Hugtakið er þó mun flókn­ara en þessi stutta skýr­ing gefur til kynna. Til er langur og alda­gam­all laga­bálkur sem kall­ast Kanun og fjallar um hinar fjöl­mörgu útfærslur á hvernig þér ber að halda tryggð við skyld­menni. Kanun var laga­bók­stafur albönsku þjóð­ar­innar allt þar til komm­ún­ista­stjórnin tók við á 20. öld, og hefur verið end­ur­vak­inn sem hluti af menn­ing­ar­arfi hennnar frá falli Sov­ét­ríkj­anna. 

Það var einmitt fall Sov­ét­ríkj­anna, og það sem fylgdi í kjöl­farið árin á eftir, sem er helsta ástæða þess að svo margir Albanir leidd­ust út á braut glæpa af illri nauð­syn.  

Minnsta HoxhaAldraðir komm­ún­istar minn­ast þjóð­ar­leið­tog­ans Envers Hoxha í Tirana fyrir nokkrum árum.

Heil þjóð rænd framtíð sinni 

Mikil bjart­sýni ríkti í Albaníu fyrst eftir fall komm­ún­ism­ans, eins og svo víða þar sem járn­tjaldið var að falla. Almenn­ingur hafði enga reynslu af mark­aðs­hag­kerfi en trúði á lof­orð vest­ur­veld­anna um að það myndi fljót­lega leiða til stór­auk­innar verð­mæta­sköp­unar og vel­meg­unar.  

Albanir þjáð­ust gríð­ar­lega undir hinum ofsókn­ar­brjál­aða og ein­angr­aða harð­stjóra Enver Hoxha og lífs­gæði þar voru verri en víð­ast hvar í Sov­ét­ríkj­unum fyrr­ver­andi. Það var því til mik­ils að vinna þegar ný stjórn­völd tóku við með blessun vest­rænna banka og blésu til stór­sóknar í efna­hags­málum. Það eina sem þurfti til, sögðu ráða­menn, var fjár­magn til að stofna fyr­ir­tæki og koma hlut­unum á skrið. 

Fjölmörg einka­fyr­ir­tæki voru stofnuð næstu árin, mörg með sterk tengsl við fyrr­nefnda ráða­menn, og var almenn­ingur ein­dregið hvattur til að leggja þeim til sitt litla sparifé til að tryggja þjóð­inni bjart­ari fram­tíð. Lítið var um skýr­ingar á því hvernig þessi fyr­ir­tæki áttu að fara að því að mala gull en þegar mörg þeirra byrj­uðu að greiða út arð þótti ljóst að nú væri kap­ít­al­ism­inn kom­inn til að vera og bæta albanskt sam­fé­lag. 

Allir sem vett­lingi gátu valdið hlupu til og settu aleig­una í þessi fyr­ir­tæki. Enginn þorði að hall­mæla góð­ær­inu, nema einn hag­fræð­ingur á vegum rík­is­stjórn­ar­innar sem var rek­inn úr starfi og honum hótað fang­els­is­vist fyrir að tala niður þjóð­ar­skút­una.  

Það sem hag­fræð­ing­ur­inn vissi var að þetta var ein­fald­lega svokölluð Ponzi svika­mylla sem gengur út á að safna sífellt nýjum fjár­festum til að geta greitt þeim fyrri arð. Engin inni­stæða var fyrir verð­mat­inu og þegar bólan sprakk árið 1997 hvarf nán­ast allt sparifé albönsku þjóð­ar­innar yfir nóttu, auk þess sem opin­berir reikn­ingar voru tæmdir. Þeir sem báru ábyrgð á öllu saman voru löngu búnir að koma sér úr landi með allt góssið þegar almenn­ingur varð þess áskynja hvað hefði gerst. Blóðug mót­mæli brut­ust út um alla Albaníu þegar fólk gerði sér grein fyrir því að það hefði verið rænt fram­tíð sinni og barna sinna. Mótmælin urðu að borg­ara­stríði, á þriðja þús­und féll í átök­unum og rík­is­stjórn­inni var steypt af stóli. En það var um seinan, örlög þjóð­ar­innar voru ráðin til næstu ára. 

Mafíuríki í Evrópu 

Algjör upp­lausn ríkti í borg­ara­stríð­inu og árin á eftir. Þjóðin var við hung­ur­mörk og grip­deildir brut­ust út um allt land. Það var af fáu að taka og fljót­lega byrj­aði almenn­ingur að herja á vopna­búr hers­ins þar sem vopn voru það eina verð­mæta sem til var í land­inu í ein­hverjum mæli. Töluvert af þessum vopnum end­aði í Kosovo þar sem stríð braust út ári síðar, og nokkrar stór­fjöl­skyldur í Albaníu byrj­uðu að stunda skipu­lögð vopna­við­skipti í skiptum fyrir gjald­eyri og nauð­synjar. 

Þá kom sér vel hversu margir Albanir höfðu flust búferlum í gegnum árin og ald­irnar á undan. Lítil sam­fé­lög Albana höfðu skotið upp koll­inum um alla Evrópu, víða í Norður- og Suður-Ameríku, í Mið­aust­ur­löndum og Ástralíu. Albanir eru tíu millj­ónir á heims­vísu en aðeins þrjár millj­ónir búa í land­inu sjálfu. Fólk, sem hafði flúið Albaníu í leit að betra lífi, var enn bundið ætt­ar­tengslum við þá sem eftir urðu og fannst það til­knúið að hjálpa ætt­ingjum sínum heima fyrir. Hugtakið besa gegndi þar lyk­il­hlut­verki. 

Með þessa tengiliði um allan heim voru albanskir glæpa­hópar fljótir að koma undir sig fót­unum og beindu strax sjónum sínum að hinum alþjóð­lega fíkni­efna­mark­aði, fyrir utan að vera enn stór­tækir í vopna­við­skiptum og man­sali. Margir þess­ara hópa hafa bein tengsl við stjórn­mála­menn í Albaníu og hefur land­inu verið lýst sem eina mafíu­ríki Evrópu, eða „narco-state“ eins og það er skil­greint af Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum. Það þýðir að allt hag­kerfi og stjórn­kerfi lands­ins er und­ir­lagt af skipu­lagðri glæp­a­starf­semi og nær ómögu­legt er að gera grein­ar­mun á lög­mætum og ólög­mætum við­skiptum þar sem sama fólkið stjórnar hvoru tveggja. 

Steininn tók úr árið 2010 þegar Evr­ópu­sam­bandið ákvað að veita Albönum frjálsan aðgang að Schengen-svæð­inu. Samkvæmt skýrslu hol­lensku lög­regl­unnar varð algjör spreng­ing í starf­semi albönsku mafí­unnar í Evrópu árin á eftir. Albanskir hópar, sem byrj­uðu sem sendi­sveinar glæpa­manna frá Rúss­landi og Suður-Ameríku, gátu nú sent allt sitt ein­vala­lið til Evrópu og tókst þannig að marg­falda umsvif sín á fáum árum. 

Lög­reglan á Ítalíu segir að albönsk sam­tök hafi um þetta leyti hafið náið sam­starf við ítölsku mafí­una á Sikiley og í Napólí og nán­ast tekið við öllum fíkni­efna­við­skiptum þeirra á heims­vísu gegn vægri þóknun. Þeim hafi helst hugn­ast að semja við Ítali þar sem þeir höfðu bæði reynsl­una og kunnu að meta sömu gildi á borð við sterk fjöl­skyldu­tengsl og tryggð. 

Í Hollandi segja yfir­völd að ástandið sé löngu orðið óboð­legt, albönsku hóp­arnir hafi vaðið þar uppi og háð blóð­ugt stríð við þá sem fyrir voru á fíkni­efna­mark­aðnum. Holland er mikil mið­stöð fíkni­efna­við­skipta í Evrópu. Hollensk stjórn­völd ósk­uðu í fyrra eftir form­legu leyfi Evr­ópu­sam­bands­ins til að neita að hleypa Albönum til lands­ins, þrátt fyrir aðild þeirra að Schengen. Segja Hol­lend­ingar um neyð­ar­ráð­stöfun að ræða til að stemma stigu við öldu ofbeldis og upp­ræta glæpa­hópa sem nýti sér ferða­frelsið til að koma eft­ir­lýstum glæpa­mönnum í öruggt skjól í Albaníu. 

Beint frá býli 

Breska lög­reglan hefur, ásamt kol­legum sínum á evr­ópska meg­in­land­inu, fylgst grannt með þróun mála hjá albönsku mafí­unni. Hún telur að Albanir hafi náð algjörum und­ir­tökum í kóka­ín­við­skiptum á Bret­landseyjum og séu hratt að auka við sig í við­skiptum með önnur efni á borð við amfetamín og MDMA. Þá sé man­sal áber­andi hluti af starf­sem­inni. 

Samkvæmt grein­ingu bresku lög­regl­unnar eru það fyrst og fremst þrjú atriði sem hafa skipt sköpum í vexti albanskra glæpa­hópa: fjöl­skyldu­tengsl, vilji til að beita hrotta­legu ofbeldi og ein­földun fram­leiðslu­keðj­unnar.  

Blóð­tengslin þýða að ómögu­legt er fyrir lög­regl­una að finna upp­ljóstr­ara eða reyna að koma dul­búnum lög­reglu­mönnum inn í sam­tökin. Allir þekkja alla, eða geta í það minnsta fljótt áttað sig á því hverra manna þú ert. Ofbeldið hefur auk­ist frá 2010 þar sem albanskir leigu­morð­ingjar eru sagðir vera sendir frá heima­land­inu til að sinna slíkum verk­efnum í Evrópu og snúa síðan aftur heim áður en hægt er að hand­sama þá. Fyrir vikið ótt­ast önnur glæpa­sam­tök að styggja þá. 

Síðast en ekki síst eru það þó breyt­ingar á fram­leiðslu­keðj­unni sem malar gull fyrir albanska glæpa­menn þessa dag­ana. Þeir byrj­uðu á að ná tökum á götu­sölu í ríkjum á borð við Bretland, Holland, Þýska­land og Ítalíu. For­ingj­arnir heima í Albaníu átt­uðu sig þó fljót­lega á því að erfitt var að reiða sig á tengiliði í þeim ríkjum sem fram­leiða fíkni­efnin, hvort sem það er í Suður-Ameríku eða Asíu. Send­ingar bár­ust oft seint og illa, auk þess sem aldrei var hægt að ganga að gæð­unum vísum. 

Samkvæmt gögnum sem breska dag­blaðið The Guardian hefur undir höndum tókst Albönum að ná samn­ingum beint við fram­leið­endur og los­uðu sig þannig við alla milli­liði í við­skipt­unum. Gang­verðið á kílói af kóka­íni í Evrópu hafi fyrir nokkrum árum verið um fjórar millj­ónir íslenskra króna í gegnum allra ódýr­ustu milli­liði í Hollandi. Með því að flytja sín efni inn beint frá Kólumbíu hafi Alb­an­irnir náð verð­inu niður fyrir eina milljón á kíló og gull­tryggt yfir­ráð sín yfir bæði smá­sölu og stór­inn­flutn­ingi í Evrópu. Enginn hafi þor eða burði til að ógna þeim úr því sem komið er, þeir hafi full­komna stjórn á sölu­ferl­inu frá upp­hafi til enda.

Sér­sveitinLög­reglan hefur á und­an­förnum árum aukið vopna­burð sinn vegna umræðu um hryðju­verkaógn og skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Komnir til Íslands en markaðurinn lítill 

Stundin hefur rætt við nokkurn hóp Íslend­inga sem hafa í gegnum tíð­ina verið hluti af und­ir­heimunum hér á landi. Ber þeim öllum saman um að albanska maf­ían sé löngu komin til lands­ins og hafi raunar verið mjög áber­andi síð­ustu ár. Þeir furða sig á lít­illi umfjöllun um málin en segja sögur ganga af hót­unum og ofbeld­is­verkum.

Eins og flestum er kunn­ugt var albanskur maður myrtur fyrir utan heim­ili sitt í Rauða­gerði á dög­unum og er sam­landi hans í haldi lög­reglu vegna máls­ins. Enginn, sem Stundin ræddi við, treysti sér til að full­yrða að málið tengd­ist fyrr­nefndum glæpa­sam­tökum, þrátt fyrir miklar sögu­sagnir þess efnis. Almennt hafi Íslend­ingar ekki góða inn­sýn í þessa hópa. „Þetta er nátt­úr­lega fjöl­skyldu­biss­ness soldið hjá þeim, þannig að maður er ekk­ert hluti af því,“ segir maður sem lengi var við­rið­inn fíkni­efna­við­skipti hér á landi. 

Aðrir heim­ild­ar­menn Stund­ar­innar sögðu mögu­legt að morðið tengd­ist eldri deilum í und­ir­heimum hér á landi. Tveir þeirra nefndu sam­keppni fyr­ir­tækja sem bjóði fram dyra­vörslu og vís­uðu til átaka sem áttu sér stað í miðbæ Reykja­víkur í sept­em­ber í fyrra. Þekktur Íslend­ingur í und­ir­heimunum hafi þá staðið með albönskum dyra­vörðum á sínum vegum, gegn marg­dæmdum íslenskum fíkni­efna­sala sem hafi flutt inn dyra­verði frá öðrum löndum í aust­an­verðri Evrópu. 

Miðað við gríð­ar­legt umfang albönsku mafí­unnar í Evrópu er Ísland ekki stór eða merki­legur biti að sögn sömu heim­ilda­manna. Það sé þó greini­lega ein­hver hópur sem sé gerður út til að koma hingað. Menn skipt­ist á að sækja um hæli eða land­vist­ar­leyfi og starfi hér við að keyra út fíkni­efni í nokkra mán­uði þar til umsókn­inni er hafnað og næsti maður tekur við. Þeir aug­lýsi allir með sömu myndum og sama enska texta á sam­skipta­for­ritum á net­inu, þeir séu allir með sömu efni sem þeir flytji öll inn sjálfir og eigi ann­ars lítil sam­skipti við íslenska glæpa­menn. 

„Þeir eru ekk­ert upp á okkur komnir með efni, og virð­ast fyrst og fremst vilja stjórna sinni eigin smá­sölu frekar en að flytja inn fyrir aðra. Maður heyrir af hót­unum og rugli en það er engin leið að vita hvort það sé eitt­hvað að ofan eða bara partur af því sem ger­ist þegar maður er á litlum en ólög­legum mark­aði þar sem sam­keppni er mikil,“ segir einn slíkur und­ir­heima­maður að lokum. Hann hafi lítil sam­skipti átt við þessa hópa og vilji halda því þannig.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár