Bryndís vill ekki bíða með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka

Telur að ríkið eigi ekki að vera í banka­rekstri - „Áhættan of mikil“

Í fyrsta þætti Stóru mál­anna hér á Stund­inni er rætt við Bryndísi Har­alds­dóttur, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um sölu ríks­ins á um fjórð­ungs­hlut í Íslands­banka. Salan er umdeild og sam­kvæmt könnun Gallup um málið er meiri­hluti þjóð­ar­innar, um 56%, á móti sölu hlut ríks­ins í bank­anum. Eingöngu 23,5% sögð­ust vera fylgj­andi söl­unni. Lang­mestur er stuðn­ing­ur­inn við söl­una hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Í þætt­inum segir Bryndís að hún telji að íslenska ríkið eigi ekki að vera í banka­rekstri og vill að báðir rík­is­bank­arnir, Lands­bank­inn og Íslands­banki, verði á end­anum seldir til einka­að­ila. Kosn­ingar eru áætl­aðar í sept­em­ber og telur Bryndís að það eigi ekki að bíða eftir kosn­ingum með að taka ákvörðun á söl­unni. 

„Nei, ég er ekki alveg það þol­in­móð, þó ég hafi lært þol­in­mæði í veru minni í stjórn­málum. Mér finnst ekk­ert óeðli­legt við það, mér finnst það skyn­sam­legt og mér finnst það var­færin leið, að fara með þessi 20 til 30 pró­sent í skrán­ingu til að sjá. Auðvitað drögum við það til baka ef það fæst ekki við­un­andi verð fyrir þetta og eft­ir­spurnin sé ekki til staðar. Mér finnst það í raun­inni mjög spenn­andi að ná að gera þetta á þessum tíma­punkti. Ég vildi þá frekar sjá umræð­una, eftir það og fyrir næstu kosn­ingar, ganga út á það hversu langt við eigum að ganga í því að selja Íslands­banka“, segir Bryndís.

Þá segir Bryndís einnig að hún telji að mikil áhætta fylgi eign­ar­haldi rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka, sú áhætta sé meðal ann­ars sú að rekstur banka er að breyt­ast og að iðn­að­ur­inn sé að gang­ast í gegnum miklar tækni­breyt­ingar. 

Viðtalið við Bryndísi í heild má sjá hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár