Mynd: Páll Stefánsson

Lok, lok og læs

Vonsku­veður á Siglu­firði varð til þess að skíða­skál­inn er nán­ast ónýtur eftir snjó­flóð og rýma þurfti níu íbúð­ar­hús við tvær götur. Und­an­farið hefur verið meira og minna ófært en ljós­mynd­ari Stund­ar­innar komst loks á áfanga­stað til að fanga and­rúms­loftið í þessu 2.000 manna bæj­ar­fé­lagi þar sem íbúar eru jafn­vel inni­lok­aðir dögum saman. Þeir kvarta ekki, veðrið var verra í fyrra.

„Er brostið aftur á,“ segir full­orð­inn maður um leið og hann opnar dyrnar á Aðal­bak­arí­inu á Siglu­firði, hallar sér fram í norð­an­bálið og hverfur út í sort­ann. „Þetta er orðið fínt, er orð­inn ansi þreyttur á þessu óveðri, þetta er níundi dag­ur­inn í röð,“ segir Hall­grímur Helgason rit­höf­undur, þar sem hann horfir á eftir mann­inum hverfa út í kófið með fangið fullt af ást­ar­pungum.  

Siglu­fjörður og Ólafs­fjörður eru tveir nyrstu bæir Trölla­skaga og mynda Fjalla­byggð, 2.000 manna sam­fé­lag þar sem veturnir eru vályndir. Stór­hríðir, skaf­renn­ingur og snjó­flóða­hætta gera það að verkum að veg­irnir báðum megin frá lok­ast og íbúar byggð­anna verða inn­lyksa dögum saman vegna ófærðar. Síð­ast­lið­inn vetur var veg­unum lokað í um fimm­tíu daga, að sögn Elíasar Pét­urs­sonar, bæj­ar­stjóra Fjalla­byggðar. „Það er bara ein lausn, tvenn jarð­göng, ann­ars vegar frá Siglu­firði yfir í Fljót, og hin frá Ólafs­firði suður til Dalvíkur. Atvinnu­lífið hér á svæð­inu, sér­stak­lega sjáv­ar­út­veg­ur­inn, þarf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Óveður í Fjallabyggð

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár