Rauði krossinn heldur úti hjálparlínunni 1717. Þar starfa 120 sjálfboðaliðar allan sólarhringinn, alla daga ársins. Árið 2020 tóku þau á móti 24.000 símtölum. Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsímans, segir sprengingu hafa orðið í fyrra, eða um 70% aukningu frá árinu 2019. „Fólk er kvíðið vegna faraldursins, einmana og margir í sjálfsvígshugleiðingum. Mesta breytingin er hve margir hafa hringt á nóttunni, við höfum þurft að bæta við mannskap á næturvöktunum.“
Athugasemdir