Fyrr á árinu flutti Hafrannsóknarstofnun í nýtt timburhús við Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn. Húsið er það stærsta á landinu, hvorki meira né minna en 4.100 fermetrar að stærð og fimm hæða hátt. Möl er notuð milli hæða, bæði til að þyngja bygginguna og hljóðeinangra í leiðinni. Í þessu nýja húsi fá hátt í 200 starfsmenn Hafró fullkomna skrifstofu og rannsóknaraðstöðu auk þess að hýsa Sjávarútvegsskóla Þróunarsamvinnumiðstöðvar UNESCO á Íslandi.
Athugasemdir