„Við erum öll almannavarnir,“ var ein af setningum ársins.
Árið var óvenjulegt fyrir margra hluta sakir. Nú þegar því fer að ljúka er það gert upp með teikningu eftir Rán Flygenring, sem unnin var í samstarfi við ritstjórn Stundarinnar. Bestu og verstu stundirnar, eftirminnileg atvik og óvæntar uppákomur.
Teikningin þekur bæði forsíðu og baksíðu á síðasta tölublaðs prentútgáfu Stundarinnar á þessu ári.
Nú þegar sólin er tekin að rísa á ný og dagana að lengja óskum við ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Með þökk fyrir samfylgdina og stuðninginn,
Stundin
Athugasemdir