Það er hægt að lækna ótta

Sema Erla Serdar hlaut nýverið mann­rétt­inda­verð­laun Reykja­vík­ur­borgar fyrir starf sitt sem for­maður hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris. Samtökin aðstoða flótta­fólk og hæl­is­leit­endur sem koma hingað til lands. Hún segir sam­tökin hjálpa hæl­is­leit­endum að nálg­ast sótt­varn­ar­búnað, en alveg eins og okkur sé kennt að hata sé hægt að aflæra það.

Solaris-sam­tökin voru stofnuð fyrir um fjórum árum og á þeim tíma hafa þau aðstoðað mörg hund­ruð manns. Barátta Semu hefur kostað mikla vinnu og tíma, en kostn­að­ur­inn hefur einnig verið per­sónu­legur. Reglu­lega verður hún fyrir per­sónu­legum árásum í dag­legu lífi ásamt stöð­ugu aðkasti á sam­fé­lags­miðlum. Samtökin eru þessa dag­ana að koma hund­ruðum jóla­gjafa til fólks á flótta sem er statt hér á landi. Stundin ræddi við Semu um stöðu flótta­fólks á Íslandi og spurði hana hvernig staðan sé frá­brugðin núna, í miðjum heims­far­aldri, fyrir fólk á flótta sem statt er á Íslandi en áður?

„Ég myndi nú segja að sú þróun sem við höfum verið að horfa upp á síð­ustu ár, sé sú mikla aukn­ing á fólki á flótta sem hefur komið til Íslands í leit að skjóli eða vernd. Við höfum séð að þau hafa búið við mjög bágar aðstæður, mikla félags­lega ein­angrun og hafa átt erfitt með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár