Gögn sýna útsendara Samherja ræða við mútuþega um að hylja peningaslóðina

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ásak­aði upp­ljóstr­ar­ann í Namibíu og ávítti fjöl­miðla fyrir umfjöllun um mútu­mál félags­ins í Namibíu. Nú sýna ný gögn að rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Jón Óttar Ólafsson sem Þor­steinn kvaðst hafa sent til Namibíu átti í sam­skiptum við mútu­þeg­ann James Hatuikulipi sum­arið 2019 um hvernig tek­ist hefði að hylja slóð pen­inga­greiðsln­anna.

Gögn sýna útsendara Samherja ræða við mútuþega um að hylja peningaslóðina
Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og for­stjór­inn Jón Óttar Ólafsson, útsend­ari yfir­stjórnar Samherja í Namibíu, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri félags­ins Mynd: Heiða Helgadóttir

Trú­verð­ug­leiki málsvarnar Samherja í mútu­máli félags­ins í Namibíu hefur beðið hnekki, þar sem gögn sýna að fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem Samherji sendi til Namibíu, ræddi við einn mútu­þeg­ann um sum­arið 2019 um að halda pen­inga­slóð­inni hul­inni fyrir yfir­völdum.

Þetta gerð­ist þremur árum eftir að Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu og upp­ljóstr­ari í mál­inu, lét af störfum hjá Samherja. Útgerð­ar­fé­lagið hefur haldið því fram í málsvörn sinni að Jóhannes Stef­áns­son hafi stýrt Namib­íu­starf­sem­inni með vafasömum hætti og bendlað Samherja við mögu­lega mis­jafna hluti. 

Gögnin, sem eru tölvu­póstar frá Jóni Óttari til James Hatuikulipi sem nú situr í gæslu­varð­haldi grun­aður um mútu­þægni,  birt­ast í grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu vegna mútu­máls­ins sem teng­ist þar­lendri starf­semi stærsta útgerð­ar­fé­lags Íslands, Samherja. Grein­ar­gerðin teng­ist sex ein­stak­lingum og er sett fram á grund­velli sak­sóknar vegna skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi.

Fjallað er ítar­lega um málið í Kveik á RÚV í kvöld og vísað í grein­ar­gerð­ina. Stundin hefur umrædda grein­ar­gerð einnig undir höndum. 

Tölvu­póst­anir sýna opin­bera einnig að Jón Óttar hefur verið ennþá meira við­rið­inn Namib­íu­starf­semi Samherja og sam­skipti útgerð­ar­fé­lags­ins við hina grun­uðu mútu­þega en hingað til hefur verið talið og legið fyrir.  Jón Óttar hefur meðal ann­ars verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna þess að hann hefur áreitt upp­ljóstr­ar­ann í mál­inu, Jóhannes Stef­áns­son, sem og Helga Seljan, frétta­mann Kveiks. 

„Við viljum ekki búa til gögn þar sem talað er um að fiskur hafi verið afhentur og svo finna þeir slóð pen­ing­anna.“

Samskipti fyrir afhjúpun mútumálsins

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem áður starf­aði fyrir Samherja í Seðla­banka­mál­inu svo­kall­aða, átti í sam­skiptum við James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann namibíska rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, vorið 2019, eftir að rann­sókn á mál­inu hófst í Namibíu en hálfu ári áður en Kveikur, Stundin og Al Jazeera greindu frá smá­at­riðum máls­ins, um slóð pen­ing­anna.

„Ég held að þeir muni ekki hafa uppi á þeim greiðslum sem greiddar voru úr landi. Við höfum lokað þeim reikn­ingum. Auk þess hafa þeir ekki burði til þess að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum,“ segir Jón Óttar í skila­boðum til Hatuikulipi í tölvu­pósti, sam­kvæmt gögnum sak­sókn­ara í Namibíu. Sam­skiptin fund­ust á far­síma Hatuikulipi, sem hann not­aði undir dul­nefn­inu. Tölvu­póst­arnir voru sendir þann 28. maí árið 2019. 

 

Sam­skipti Jóns Óttars og James HatuikulipiEfni sam­tals­ins er hvort yfir­völd hafi get­una til að rekja greiðslur „erlendis“, sem fóru eftir flóknum aflands­svæðum.

Í öðrum tölvu­pósti segir Jón Óttar við James: „Við viljum ekki búa til gögn þar sem talað er um að fiskur hafi verið afhentur og svo finna þeir slóð pen­ing­anna.“

Eins og fjallað hefur verið um greiddi Samherji mörg hund­ruð millj­ónir króna til fyr­ir­tækis James Hatukulipi í Dubaí í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta sem Samherji fékk úthlutað í svoköll­uðum Namgomar-við­skiptum. Namgomar-við­skiptin voru byggð á milli­ríkja­samn­ingi á milli Namibíu og Angóla sem var und­ir­rit­aður gagn­gert til að Samherji gæti fengið umræddan kvóta. Þessi við­skipti eru nú rann­sökuð sem ætlað sam­særi (e. perj­ury) í Namibíu. 

Eigandi Tunda­valaJames Hatuikulipi var eig­andi Tunda­vala Invest­ments sem tók við greiðsl­unum frá félögum Samherja sem Jón Óttar taldi mik­il­vægt að hylja.

Samhengi ákæruvaldsins

Í grein­ar­gerð­inni er að finna texta frá rík­is­sak­sókn­ar­anum í Namibíu þar sem tölvu­póstar Jóns Óttars eru settir í sam­hengi. Þar segir að í maí 2019 hafi komið upp áhyggjur, vænt­an­lega hjá sam­starfs­mönnum Samherja sem nú sitja í gæslu­varð­haldi, um að ein­hver myndi kom­ast á snoðir um greiðsl­urnar til Dubaí og engin gögn væru til sem útskýrði eðli þeirra og sýni fram á rétt­mæti þeirra. 

Ákæru­valdið vitnar svo í Jón Óttar og það mat að ekki væri æski­legt að búa til papp­írs­slóð um þessi við­skipti sem mögu­lega yrði hægt að rekja. Samherji vildi því engin gögn um eðli „ráð­gjafagreiðsln­anna“. 

Ein af spurn­ing­unum sem vaknar við þetta er af hverju Samherji vildi ekki búa til gögn, papp­íra, um greiðslur sem fyr­ir­tækið segir í dag að hafi verið eðli­legar ráð­gjafagreiðslur og ekki mútur.

Hvað var það þá sem Samherji var hræddur við og vildi fela?

Samherji vildi ekki gögnÁkæru­valdið í Namibíu leggur út frá orðum Jóns Óttars í tölvu­póst­inum á þann veg að útgerð­ar­fé­lagið hafi ekki viljað skapa papp­írs­slóð um greiðsl­urnar. Spurn­ingin sem eftir stendur er af hverju Samherji vildi ekki búa til gögn um greiðslur sem félagið segi nú að hafi verið eðli­legar.

Kenndu Jóhannesi einum um

Í yfir­lýs­ingu frá Samherja í kjöl­far umfjöll­unar Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um mútu­málið, 11. nóv­em­ber í fyrra, til­greindi Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og þá einn aðal­eig­enda félags­ins áður en afkom­endur helstu eig­end­anna tóku við hluta­fénu, að Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í mál­inu sem ræddi við fjöl­miðl­ana, hefði einn borið ábyrgð á mis­fellum í rekstr­inum í Namibíu, eins og áður hefur verið nefnt. 

„Það sem við teljum rétt að koma á fram­færi á þessum tíma­punkti er að þegar við urðum þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namibíu sendum við fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann hjá sér­stökum sak­sókn­ara til Namibíu. Eftir nokk­urra mán­aða vinnu hans var nið­ur­staðan að segja umræddum starfs­manni upp störfum án tafar vegna óásætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­unar.“

Nú kemur hins vegar fram í gögnum namibíska rík­is­sak­sókn­ar­ans að hátt í þremur árum eftir að Samherji sendi Jón Óttar til Namibíu átti hann í sam­skiptum við mútu­þega um hvort slóð pen­inga­greiðslna í gegnum aflands­fé­lög séu huldar yfir­völdum.

Mútu­greiðslur Samherja héldu áfram að ber­ast mútu­þeg­unum eftir að Jóhannes hætti störfum sem fram­kvæmda­stjóri í Namibíu. Síðustu greiðsl­urnar sem Kveikur og Stundin greindu frá í fyrra fóru frá reikn­ingum Samherja til félaga Namib­íu­mann­ann sem nú sitja í gæslu­varð­haldi í jan­úar í fyrra, tveimu og hálfu ári eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja. Eins og fjallað hefur verið um í Stund­inni sýna gögn frá Samherja að Ingvar Júl­í­us­son, og einnig Baldvin Þor­steins­son, hafa stýrt og komið að stjórn félags­ins á Kýpur sem greiddi féð til Dubaí sem Jóni Óttari var svo umhugað um að fela. 

Fram hefur komið að Jón Óttar fékk áður 135 millj­óna króna greiðslur fyrir störf sín í þágu Samherja vegna Seðla­banka­máls­ins svo­kall­aða. Hann var einn af meg­in­við­mæl­endum Samherja í mynd­böndum sem útgerðin kost­aði birt­ingar á um nokk­urt skeið á Youtube, í kjöl­far þess að umfjöllun um mútu­málið kom fram.

„Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og vill­andi ásök­unum frá fyrr­ver­andi starfs­manni sem enn á ný eru mat­reiddar af sömu aðilum og fjöl­miðlum og í Seðla­banka­mál­inu,“ sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í yfir­lýs­ing­unni í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Neita ásökunum

Haft er eftir Björgólfi Jóhanns­syni, for­stjóra Samherja, á heima­síðu Samherja í kvöld þar sem svarið til Kveiks er birt að greiðslur félags­ins fyrir kvóta í Namibíu hafi verið lög­mætar.

„Við höfum alfarið neitað því að félög tengd Samherja hafi greitt mútur eða aðrar óeðli­legar greiðslur. Hvort sem það er í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu eða ann­ars staðar. Við lítum svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja.“

Í svörum sínum á vef Samherja svarar Björgólfur ekki fyrir orð Jóns Óttars í tölvu­póst­unum til James Hatukulipi í fyrra þar sem hann ræðir um mik­il­vægi þess að greiðsl­urnar fari leynt. Enn frekar svarar Björgólfur því ekki af hverju Jón Óttar hafði áhyggjur af því að lög­gæslu­yf­ir­völd kæmust á snoðir um greiðsl­urnar. 

James Hautikulipi og við­skipta­fé­lagar hans sem grun­aðir eru um mútu­þægni í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu hafa setið í gæslu­varð­haldi í rúmt ár meðan málið hefur verið rann­sakað í Namibíu. Á mánu­dag­inn kemur í ljós hvort gæslu­varð­hald yfir honum og öðrum sak­born­ingum í mál­inu verður fram­lengt eða ekki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
5
StjórnmálHorft til Evrópu

Þrátt fyr­ir nei „lok­um við að sjálf­sögðu ekki á Evr­ópu“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evr­ópu eða grafa und­an EES-samn­ingn­um. Orð henn­ar falla á sama tíma og stjórn­ar­and­stað­an vill stað­fest­ingu á stöðu að­ild­ar­um­sókn­ar­inn­ar og frum­varp um bók­un 35 ligg­ur aft­ur fyr­ir Al­þingi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár