Segir áreitið ekki koma á óvartJóhannes Stefánsson segir að áreitið sem hann hefur orðið fyrir komi ekki á óvart og að mikilvægt sé að tilkynna um það svo lögregluyfirvöld hafi það á skrá hjá sér ef það ágerist.Mynd: Davíð Þór
Jóhannes tilkynnti áreiti „rannsóknarlögreglumanns Samherja“ til héraðssaksóknara
Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari í Samherjamálinu í Namibíu, segir að Jón Óttar Ólafsson, ráðgjafi Samherja, hafi elt sig og opnað hurð á bílnum hans. Hann segir að Jón Óttar hafi sent sér rafræn boð í gegnum samfélagsmiðilinn Twitter og að tilgangurinn sé að láta vita af því að fylgst sé með honum.
Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari í Samherjamálinu í Namibíu, tilkynnti áreiti af hendi Jóns Óttars Ólafssonar, sem starfað hefur fyrir Samherja sem ráðgjafi, til embættis héraðssóknara í nóvember síðastliðnum. Þetta segir Jóhannes Stefánsson í samtali við Stundina.
„Maðurinn elti mig að bílnum mínum, opnaði farþegahurðina að framan og tók upp myndband af mér “
Tilkynning en ekki kæraTilkynning Jóhannesar Stefánsson til embættis héraðssaksóknara, Ólafs Haukssonar, var tilkynning en ekki kæra og fór málið því ekki í lögformleg ferli innan embættisins. Embættið veit hins vegar af málinu segir Jóhannes.
Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin
Jóhannes segir að hann hafi verið að koma af fundi með vini sínum þegar hann hafi rekist á Jón Óttar. Hann segir að þeir hafi tekið tal saman sem hafi endað með því að Jón Óttar hafi byrjað að taka upp myndband af honum á …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir