Dýrmæt augnablik standa öllum til boða

Leit­ið og þér mun­uð finna hin dýr­mætu augna­blik, er boð­skap­ur­inn í nýrri bók Þrá­ins Bertels­son­ar, Hunda­líf. Eft­ir langvar­andi veik­indi eig­in­kon­unn­ar var þörf á skemmt­ana­stjóra á heim­il­ið og æv­in­dýr­ið Theobald gekk inn í líf þeirra. Bók­in inni­held­ur ör­sög­ur og ­sam­töl manns og hunds um líf­ið og hvers­dags­leg æv­in­týr.

Í dag­legum göngu­ferðum sínum ræða ungur hundur og gam­all maður saman um lífið og til­ver­una. Gamli mað­ur­inn heitir Þráinn og sam­býl­is­hundur hans er franski bola­bít­ur­inn Theobald.
Þetta eru örsögur og örstutt sam­töl. Gaman og alvara. Safn lít­illa ævin­týra um fjöl­breytni hvers­dags­leik­ans.
- Glás af dýr­mætum augna­blikum, segir Theobald.

Þannig er Hundalíf saga vin­anna Þráins Ber­tels­sonar og Theobalds kynnt á bak­hlið bók­ar­innar.

„Hún er fyrst og fremst um leit. Og ef hún hefur ein­hvern boð­skap í sam­bandi við þessa leit þá er það „leitið og þér munuð finna“. Án þess að vera trú­ar­legs eðlis fjallar hún um leit­ina að ein­hverri vellíðan, ham­ingju eða eins og Theobald kallar það „dýr­mæt augna­blik“. Við erum saman og erum að leita. Við gerum það á göng­unni sem við förum í dag­lega og þegar við erum tveir að tjilla þá erum við að leita að dýr­mætu augna­blik­unum sem standa öllum til boða og eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

Nútímaafinn hlustar á Fræbbblana og Q4U
MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­af­inn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rit­höf­undur vegna þess að við sitjum hér að bók­mennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramat­íska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmti­legar en raun­sæjar barna­bækur eins og nýj­ustu bók­ina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frí­stunda­starf.
Konan sem elskaði fossinn
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði foss­inn

Sigríður Tóm­as­dóttir frá Bratt­holti var mikið nátt­úru­barn og dýra­vinur en átti erfitt með mann­leg sam­skipti. Sigríður er þekkt­ust fyrir bar­áttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í foss­inn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði foss­inn er sögu­leg skáld­saga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrif­aði fyrst um Siggu frá Bratt­holti fyrir þrjá­tíu árum. Hún segir mik­il­vægt að vekja athygli á bar­áttu­konum fyrri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár