222. spurningaþraut: Pangea, Pýreneafjöll, boðorðin tíu ... og fleira!

222. spurningaþraut: Pangea, Pýreneafjöll, boðorðin tíu ... og fleira!

Hér er gær­dags­þrautin!

***

Fyrri aðal­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan er úr íslenskri kvik­mynd. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða styrj­öld kom hers­höfð­ing­inn Robert E. Lee við sögu?

2.   Hvaða fyr­ir­bæri var Pangea (stundum skrifað Pangaea)?

3.   Hvaða land er umlukt Pýrenea­fjöllum?

4.   Hvaða for­sæt­is­ráð­herra Íslands hafði áður verið lög­reglu­stjóri?

5.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Don Kíkóta?

6.   Hver færði Gyðingum boð­orðin tíu frá guði?

7.   Í hvaða hafi er eyjan Sri Lanka?

8.   Hver söng lagið All Out of Luck?

9.   Hvaða ríki sendi af stað Flotann ósigr­andi?

10.  Hvað var upp­runa­legt ætt­ar­nafn Hillary Clinton?

***

Seinni aðal­spurn­ing:

Winston Churchill átti marga vini. Hér sést hann árið 1928 með góðri vin­konu sinni, sem hann átti vel að merkja ekki í ást­ar­sam­bandi við, en vin­átta þeirra var bara traust og býsna inni­leg. Þessi dökkklædda kona var sann­ar­lega ekki í neinu stjórn­mála­vaf­stri, heldur lét hún að sér kveða á allt öðru sviði – en þar þótti hún vera ein­hver sú allra fremsta í heim­inum mest­alla 20. öld­ina og gilti þá einu hvort um var að ræða karla eða konur. Hver er konan á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Banda­ríska borg­ara­stríð­inu, þræla­stríð­inu eins og það er stundum kallað.

2.   Fyrir óra­tíma voru allar heims­álfur heims­ins sam­þjapp­aðar í eina risa­heims­álfu. Hana köllum við Pangeu.

3.   Andorra.

4.   Hermann Jónasson.

5.   Cervantes.

6.   Móses.

7.   Ind­lands­hafi.

8.   Selma Björns­dóttir.

9.   Spán­verjar.

10.   Rodham.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri: Kvik­myndin heitir Agnes Joy.

Seinni: Konan er Coco Chanel, fata- og ilm­vatns­hönn­uður.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár