221. spurningaþraut: Hvað heitir Barbie fullu nafni og hver beitti hárþurrkuaðferðinni?

Þrautin í gær sner­ist um skáld­sögur og skáld­sagna­höf­unda. Reynið yður við hana hér.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ár var myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ár sökk far­þega­skipið Titanic í Atl­ants­hafi?

2.   Hvað heitir dúkkan Barbie fullu nafni?

3.   Hvaða þétt­býl­is­staður er stærstur á aust­ur­strönd Eyja­fjarðar?

4.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Líbanon?

5.   Við hvern er flug­völl­ur­inn við Liverpool kenndur?

6.   Hvað heitir leiðin frá Svína­hrauni til Þor­láks­hafnar?

7.    Margrét Guðna­dóttir lést árið 2018 eftir langan og giftu­ríkan feril sem ... hvað?

8.   Hvaða skoski fót­bolta­þjálf­ari er gjarnan í gamni sagður hafa beitt „hár­þurrku­að­ferð­inni“ þegar hann vildi skamma leik­menn sína fyrir leti, syfj­anda­hátt, van­hæfni og ves­al­dóm?

9.   Annika Sör­enstam heitir kona ein sem sett­ist í helgan stein árið 2008 en hafði þá um margra ára skeið verið lang­fremsta og sig­ur­sælasta konan í ákveð­inni íþrótta­grein. Hver var sú grein?

10.   Hvað heitir hin stærsta af Vest­manna­eyjum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver sendi frá sér þá hljóm­plötu sem hér sést hluti af?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   1912.

2.   Barbara Millicent Roberts.

3.   Grenivík.

4.   Beirut.

5.   John Lennon.

6.   Þrengsli.

7.   Læknir, veiru­fræð­ingur – hvorttveggja er rétt.

8.   Ferguson.

9.   Golf.

10.   Heimaey.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mynd sú hin efsta var tekin árið 1956 – nánar til­tekið í Ung­verja­landi.

Neðri myndin sýnir hluta af plötu Stevie Wonder, Songs in the Key of Life.

***

Og að nýju er hér hlekkur á þraut­ina frá gær­deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár