Ofurhetjan eftir Hjalta Halldórsson

Stundin sendir út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Að þessu sinni verður Ofur­hetjan eftir Hjalta Hall­dórs­son tekin til skoð­unar, þar sem Hjalti les úr bók­inni og spjallar um hana við Guðrúnu Láru Pét­urs­dóttur, bók­mennta­fræð­ing.

Stundin sendir út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Að þessu sinni verður Ofur­hetjan eftir Hjalta Hall­dórs­son tekin til skoð­unar, þar sem Hjalti les úr bók­inni og spjallar um hana við Guðrúnu Láru Pét­urs­dóttur, bók­mennta­fræð­ing.

Streymið er aðgengi­legt efst í þess­ari frétt og á Facebook-síðum Stund­ar­innar og Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi. Upptaka verður til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er frétta­til­kynn­ing frá Menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Nýjar og spenn­andi jóla­bækur fyrir barna og ung­linga verða til umfjöll­unar í Fjöl­skyldu­stund á laug­ar­dögum næstu vik­urnar. Guðrún Lára Pét­urs­dóttir, bók­mennta­fræð­ingur ræðir við höf­unda nýút­kom­inna bóka og þeir lesa úr verkum sínum á Bóka­safni Kópavogs.

Við­burð­irnir verða sendir út á Facebook-síðum Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi og Bóka­safns Kópavogs og verða einnig aðgengi­legir eftir að útsend­ingu lýkur.

Ofur­hetjan eftir Hjalta Hall­dórs­son verður tekin til skoð­unar í fyrsta þætti - þar sem Hjalti les úr glæ­nýrri bók sinni og spjallar um við Guðrúnu Láru.

——————

Um Ofur­hetj­una eftir Hjalta Hall­dórs­son

Gulla dreymir um að verða eitt­hvað meira en ósköp venju­legur drengur. Með hjálp Helgu vin­konu sinnar upp­götvar hann óvænt áður óþekktan hæfi­leika sem breytir lífi hans. Hann setur á sig grímuna og verður Ormstunga, ofur­hetja sem berst gegn ein­elt­is­seggjum.

Hverju er Gulli til­bú­inn til að fórna til að ráða að nið­ur­lögum erkió­vin­ar­ins? Ofur­hetjan er æsispenn­andi saga um ALVÖRU ofur­hetju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölskyldustund á laugardögum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár