191. spurningaþraut: Hver var í Kiljunni, hvar var Bessarabía?

191. spurningaþraut: Hver var í Kiljunni, hvar var Bessarabía?

Þrautin frá í gær, jú, hérna er hún.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á skjá­skot­inu hér að ofan má sjá hluta af frægu plötu­umslagi. Hvað hét hljóm­sveitin sem gaf út plöt­una?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Einu sinni var hérað eitt í Evrópu kallað Bess­ar­abía. Nú er þetta nafn aflagt en tveir þriðju hliðar hinnar gömlu Bess­ar­abíu eru sér­stakt sjálf­stætt ríki. Hvað heitir það?

2.   Hver var fasta­gestur árum saman í bók­mennta­þætti Egils Helga­sonar, Kiljunni?

3.   Petra Kelly hét kona ein, bar­átt­uglöð og hug­sjóna­rík. Hún fædd­ist 1947. Um 1980 átti hún þátt í að stofna merki­legan stjórn­mála­flokk í heima­landi sínu, sem tók að ýmsu leyti nýjan pól í hæð­ina í póli­tískri bar­áttu. Hún sat á þingi í sjö ár en var síðar myrt af ókunnum ástæðum af sam­býl­is­manni sínum, sem líka stjórn­mála­maður og fyrrum hers­höfð­ingi. Hvað hét stjórn­mála­flokk­ur­inn sem Petra Kelly átti svo mik­inn þátt í að stofna?

4.   Djúp sár gróa hægt, Hann er ekki þú, Sólblóm og Rólegur kúreki – þetta eru allt lög á nýrri hljóm­plötu sem ... hver gaf nýlega út?

5.   Landa­kots­spít­ali var upp­haf­lega stofn­aður af til­teknum kristnum söfn­uði. Hvaða söfn­uður var það?

6.   Gömul og góð hljóm­sveit hefur gengið í gegnum miklar manna­breyt­ingar þá ára­tugi sem hún hefur starfað. Nokkrir af elstu með­limunum eru löngu hættir, menn eins og Martin Barre, John Evan, Barrimore Barlow og Jeffrey Hammond-Hammond. Hér er svo ótal­inn sann­kall­aður leið­togi hljóm­sveit­ar­innar og raunar and­lit hennar í 50 ár, maður sem oft hefur heim­sótt Íslands­strendur. Hvað heitir hljóm­sveitin sem hefur m.a.s. haldið tón­leika á Akranesi af öllum stöðum?

7.   Hvað heitir höf­uð­borg Brasilíu?

8.   Til nef­dýra telj­ast örfáar teg­undir sem búa í Ástralíu og á Nýju Gíneu. Þessar teg­undir eru algjör­lega ein­stæðar meðal spen­dýra af til­tek­inni ástæðu. Hver er hún?

9.   Rishi Sunak heitir maður nokkur, fer­tugur að aldri, ætt­aður frá Punjab-hér­aði á Indlandi en fæddur í Evrópu. Hann varð marg­millj­óner á því að starfa í bönkum og fjár­fest­ing­ar­sjóðum, en sneri sér síðan að póli­tík og er orð­inn fjár­mála­ráð­herra í til­teknu nágranna­landi okkar. Hvaða land er það?

10.   „Buttercup“ eða „smjör­bolli“ heitir mjög algeng blóma­teg­und á enskri tungu. Hvað heitir smjör­boll­inn á íslensku?

***

Seinni aðal­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Moldova.

2.   Bragi Krist­jóns­son.

3.   Græn­ingja­flokk­ur­inn í (Vestur)Þýska­landi.

4.   Bríet.

5.   Kaþ­ólikkar.

6.   Jethro Tull.

7.    Brasilía.

8.    Nefdýrin verpa eggjum.

9.   Bretland.

10.   Sóley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er af plöt­unni Never Mind the Bollocks, Here's the Sex Pistols, með hljóm­sveit­inni Sex Pistols.

Á neðri mynd­inni er Vala Flosa­dóttir afreks­kona í stang­ar­stökki.

***

Og hlekkur á þraut gær­dags­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár