190. spurningaþraut: Spurningar um Bandaríkin, þær eru 11 að þessu sinni, ekki 10

190. spurningaþraut: Spurningar um Bandaríkin, þær eru 11 að þessu sinni, ekki 10

Þrautin frá í gær.

***

Þessi þraut er öll helguð Banda­ríkj­unum í til­efni af for­seta­kosn­ing­unum þar. Og vegna þeirra eru aðal­spurn­ing­arnar reyndar 11, ekki 10, eins og venju­lega.

Fyrri auka­spurn­ingin snýst hins vegar um mynd­ina hér að ofan.

Hvaða banda­ríska borg er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hversu margir eru Banda­ríkja­menn? Hér má muna fimm millj­ónum til eða frá?

2.   Hvað er stærst af hinum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna?

3.   En minnst?

4.   Hvað heitir fjöl­menn­asta borgin í rík­inu Texas?

5.   Hver hefur lengst allra gegnt emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna?

6.   En hver er eini for­set­inn, sem hefur fallið í kosn­ingum en síðan náð aftur kjöri seinna?

7.   Til hvaða stór­borgar telst Staten eyja?

8.   Banda­ríska skáld­konan Louise Glück fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum á dög­unum. Áður höfðu 11 Banda­ríkja­menn fengið þessi verð­laun. Nefnið að minnsta kosti þrjá þeirra.

9.   Banda­ríkja­for­set­inn er kjör­inn af sér­stakri kjör­manna­sam­kundu, eins og kunn­ugt er, en ríkin 50 kjósa hvert um sig svo og svo marga full­trúa í þá sam­kundu. Til Banda­ríkj­anna telj­ast ýmis svæði hingað og þangað um heim­inn, en fyrir utan hin venju­legu 50 ríki, þá er aðeins eitt svæði talið verð­ugt þess að fá að kjósa nokkra kjör­menn í sam­kund­una. Hvaða svæði er það?

10.   Hvað heitir heit­asti stað­ur­inn í Banda­ríkj­unum? – sem er raunar jafn­framt einn heit­asti og þurr­asti staður í heimi.

11.   Hver vinnur for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum á morgun?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Í fyrra töld­ust Banda­ríkja­menn vera rúm­lega 328 millj­ónir. Rétt telst vera allt frá 323 millj­ónum til 334 millj­óna.

2.   Alaska.

3.   Rhode Island.

4.   Houston.

5.   Franklin D. Roosevelt.

6.   Grover Cleveland.

7.   New York.

8.   Verð­launa­haf­arnir 11 á undan Glück eru: Sinclair Lewis, Eugene O'Neill, Pearl S. Buck, William Faulkner, Ernst Hemingway, John Steinbeck, Saul Bellow, Isaac Bashevis Singer, Joseph Brodsky, Toni Morrison og Bob Dylan.

9.   Höf­uð­borgin Washington í Columbia-hverfi. Hún telst ekki hluti af neinu ríkj­anna 50.

10.   Dauða­dalur, Death Valley, í Kali­forníu. Þið þurfið reyndar ekki að vita um ríkið þar sem þessi dalur leyn­ist, nafnið á honum sjálfum er nóg.

11.   Þið verðið að bíða fram á mið­viku­dag með að kom­ast að því hvort þið hafið rétt fyrir ykkur hér eða ekki. 

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Borgin er Chicago.

Konan var Rosa Parks, sem fræg varð í mann­rétt­inda­bar­áttu svartra íbúa í Banda­ríkj­unum eftir að hún neit­aði ung að árum að standa upp fyrir hvítum far­þega í stræt­is­vagni.

***

Og loks aftur þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár