Mynd: ROBERT ATANASOVSKI / AFP

Aukið mannfall, minni yfirburðir

Banda­ríkja­her þarf á næstu árum að byrja að sætta sig við mann­fall á borð við það sem tíðk­að­ist í seinni heims­styrj­öld­inni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Pentagon sem málar svarta mynd af þeim átökum sem kunna að brjót­ast út á milli stór­velda 21. ald­ar­innar. Kín­verjar fylgja Banda­ríkja­mönnum fast á eftir og eru með 30 ára áætlun um að ná hern­að­ar­legum yfir­burðum á heims­vísu.

Um alda­mótin 2000 byrj­aði banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið að taka saman árlega skýrslu um stöðu og fram­tíð kín­verska hers­ins. Það var við upp­haf kín­verska efna­hagsund­urs­ins og þótti yfir­mönnum Banda­ríkja­hers ljóst að í fram­tíð­inni yrðu það helst Kín­verjar sem gætu ógnað hinum miklu hern­að­ar­legu heims­yf­ir­burðum sem Banda­ríkin öðl­uð­ust eftir fall Sov­ét­ríkj­anna ára­tug áður.

George W. Bush

George W. Bush, þáver­andi for­seti, skip­aði hers­höfð­ingjum sínum að horfa til Asíu og draga úr umsvifum í Evrópu á móti, var stefnan nefnd „pivot to Asia“. Í fyrstu árlegu skýrsl­unni um Kínaher, sem Bush fékk á skrif­borðið sitt í Hvíta hús­inu stuttu eftir emb­ætt­is­töku, gætti þó óneit­an­lega enn bjart­sýni um fram­haldið. 

Skýrslu­höf­undar sögðu meðal ann­ars að kín­verski her­inn væri fjöl­mennur en búinn úreltum tækja­kosti sem gerði það að verkum að hann ein­blíndi fyrst og fremst á að verja eigin landa­mæri. Kín­verskar eld­flaugar væru skamm­drægar og óná­kvæmar. Notkun þeirra á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár