49. spurningaþraut: Steve Jobs, forseti Íslands, gamla gasstöðin við Hlemm

49. spurningaþraut: Steve Jobs, forseti Íslands, gamla gasstöðin við Hlemm

Myndin hér að ofan, hvað er þarna að ger­ast?

Og hver er á mynd­inni hér fyrir neðan spurn­ing­arnar tíu?

En þær eru hér:

1.   Árið 1985 var banda­ríski tölvugúrú­inn Steve Jobs hrak­inn frá tölvu­fyr­ir­tæk­inu Apple, sem hann átti þátt í að stofna. Hann stofn­aði þá annað fyr­ir­tæki á svip­uðum grunni og Apple en 1997 keypti Apple það og hann komst aftur til met­orða í gamla fyr­ir­tæk­inu sínu. Hvað hét þetta fyr­ir­tæki?

2.   Hvað heitir höf­uð­borg Bret­lands?

3.   Við hvaða götu í Reykja­vík er skrif­stofa for­seta Íslands?

4.   Hver orti um gömlu gas­stöð­ina við Hlemm?

5.   Í hvaða styrj­öld hlúði Florence Night­ingale að særðum dátum?

6.   Á tindi Everest eru landa­mæri. Hvaða tvö ríki mæt­ast þar?

7.   Larry Page og Sergei Brin, hvað skyldu þeir (og þriðji maður) hafa fundið upp sem flestir nota nán­ast á degi hverjum, sér í lagi ef fólk van­hagar um eitt­hvað?

8.   Hvað hét eig­in­kona Adolfs Hitlers?

9.   Stærsta apa­teg­und sög­unnar er kölluð á fræði­máli gigantopithecus. Api þessi er tal­inn hafa verið 3-4 metrar á hæð, en hann er útdauður fyrir löngu. Hvaða núlif­andi aga­teg­und var hann skyldastur?

10.   Þrjú íslensk fót­boltalið hafa unnið efstu deild­ina í karla­flokki aðeins einu sinni hvert. Hvaða lið eru það?

1.   NeXT.

2.   London.

3.   Sól­eyj­ar­götu.

4.   Megas.

5.   Krím­stríð­inu.

6.   Nepal og Kína.

7.   Google.

8.   Eva Hitler. Ég hef ákveðið eftir mikið sál­ar­stríð að gefa líka rétt fyrir Evu Braun, þótt hún hafi raunar alls ekki heitið það eftir að hún var orðin eig­in­kona Hitlers.

9.   Órangu­tan.

10.   KA, Breiða­blik og Stjarnan.

Konan á mynd­inni hér að ofan er Lisbet Palme, ekkja sænska stjórn­mála­leið­tog­ans Olof Palme.

Myndin efst er hins vegar hluti af mynd sem sýnir Ronald Reagan og Mikhail Gorbachov ganga niður tröpp­urnar í Höfða.

Svona er myndin í heild, hana tók Peter Marlow:

En þrautin frá í gær er hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár