48. spurningaþraut: Hver féll úr keppni á ólympíuleikunum en vann samt?

48. spurningaþraut: Hver féll úr keppni á ólympíuleikunum en vann samt?

Auka­spurn­ing­arnar eru þessar:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

Hvað heitir dýrið á neðri mynd­inni?

Aðal­spurn­ingar tíu eru þessar:

1.   Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir hefur vakið heil­mikla athygli fyrir músík sína hér á landi síð­ustu miss­eri, en er að vísu þekkt­ust undir öðru nafni. Hvaða sviðsnafn er það?

2.   Þrjú ríki Banda­ríkj­anna eru á Kyrra­hafs­strönd meg­in­lands­ins. Þar af er Washington-ríki nyrst en Kali­fornía syðst. Hvað heitir ríkið á milli þeirra?

3.   Í hvaða stríði kom hetjan Patroclus við sögu?

4.   Af hvaða ætt fiska er þorsk­ur­inn?

5.   Björk Guð­munds­dóttir vakti mikla athygli þegar hún kom ung að árum fram í kvik­mynd­inni Rokk í Reykja­vík, og söng þá með hljóm­sveit sem hét ... hvað?

6.   „Fagurt gal­aði fugl­inn sá ...“ segir í kvæð­inu. Hvaða fugl er verið að tala um?

7.   „Hvíta albú­mið“ svo­kall­aða er ein af plötum Bítlanna. Þetta gælu­nafn plöt­unnar er dregið af því að albú­mið er mjalla­hvítt. En hvað heitir þessi plata í raun og veru?

8.   Árið 67 keppti Róm­ar­keis­ari á ólymp­íu­leik­unum í Grikk­landi, meðal ann­ars í kapp­reiðum á vögnum sem tíu hross drógu. Keis­ar­inn missti stjórn á vagni sínum, kastað­ist út úr honum og varð að hætta keppni. Eigi að síður var hann úrskurð­aður sig­ur­veg­ari, líkt og í öllum öðrum greinum sem hann tók þátt í. Hvað hét þessi kapps­fulli Róm­ar­keis­ari?

9.   Hver er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður?

10.   Filippus prins og eig­in­maður Elísa­betar Breta­drottn­ingar hélt um dag­inn upp á 99 ára afmæli sitt. Í hvaða landi fædd­ist sá gam­an­sami öld­ungur?

Svörin eru:

1.   GDRN.

2.   Oregon.

3.   Tróju­stríð­inu.

4.   Þorsk­fiska.

5.   Tappi tík­arrass.

6.   Hænsn­fugla.

7.   The Beatles.

8.   Neró.

9.   Helga Vala Helga­dóttir.

10.   Grikk­landi.

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin var tekin augna­bliki eftir að blökku­manna­leið­tog­inn Martin Luther King var skot­inn til bana 1968.

Dýrið heitir des­dýr, eða þef­köttur. Jarð­köttur mundi jafn­vel telj­ast rétt.

En hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár