47. spurningaþraut: Hvaða heimsfrægi rithöfundur sótti au-pair stúlkur til Íslands?

47. spurningaþraut: Hvaða heimsfrægi rithöfundur sótti au-pair stúlkur til Íslands?

Auka­spurn­ing­arnar hljóða svá:

Úr hvaða stríði er þessi mynd tekin?

Og hver er konan á neðri mynd­inni?

Þær tíu aðal­spurn­ingar eru svohljóð­andi:

1.   Árið 1787 ákváðu Danir að setja upp sex sér­staka kaup­staði á Íslandi. Þessir sex kaup­staðir voru Reykja­vík, Vest­manna­eyjar, Reyð­ar­fjörður, Ísa­fjörður, Akureyri og ... hver var sá sjötti?

2.   Richard Marquand hét welskur kvik­mynda­leik­stjóri sem lést af hjartaslagi árið 1987 aðeins 49 ára gam­all. Hann er ekki í hópi þekkt­ustu leik­stjóra en var þó virtur vel fyrir hag­an­legar hasar­myndir, og var reyndar - fjórum árum fyrir and­látið eða svo - leik­stjóri einnar af vin­sæl­ustu myndum allra tíma. Sú mynd var raunar hluti af vin­sælli seríu. Hvað hét þessi mynd Richard Marquands?

3.   William Butler Yeats, James Joyce, George Bernard Shaw, Samuel Beckett, Seamus Heaney. Þessir fimm eru án efa þekkt­ustu og bestu rit­höf­undar Írlands á 20. öld. Hver þeirra fékk EKKI Nóbels­verð­launin í bók­menntum?

4.   Einn fræg­asti rit­höf­undur Englands á 20. öld­inni hafði gjarnan au-pair stúlkur frá Íslandi. Það fór ekk­ert illa á því, vegna þess að höf­undur þessi not­aði mjög ýmis íslensk og/eða forn­nor­ræn stef í bókum sínum. Hann fann til dæmis nöfn á margar per­sónur sínar í gömlum íslenskum skræðum. Hvað hét höf­undur þessi? 

5.   Hvað heitir höf­uð­borgin á Kúbu?

6.   Hver hefur lengst allra verið for­seti Frakk­lands?

7.   Hvaða áfeng­is­teg­und er fræg fyrir að vera fram­leidd í franska hér­að­inu Armagnac (borið fram armanjak)?

8.   Frá hvaða landi er kvik­mynda­stjarnan Cate Blanchett?

9.   Hvað heitir stóra systir Míu litlu í sög­unum um Múmínálf­ana?

10.   Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Noregs?

Svörin:

1.   Grund­ar­fjörður.

2.   Return of the Jedi - úr Star Wars ser­í­unni.

3.   James Joyce.

4.   J.R.R. Tolkien.

5.   Havana.

6.   Francois Mitt­er­and.

7.   Armagnac.

8.   Ástralíu.

9.   Mímla.

10.   Erna Solberg.

Myndin efst er úr Víetnam­stríð­inu, eins og aug­ljós­lega má ráða af þyrl­unum sem ein­kenndu þann hörmu­legu stríðs­rekstur.

Konan er Marlene Dietrich ung að árum.

En spurn­ingar frá í gær eru hér.

  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár