42. spurningaþraut: Eldflaugar, múrar og kettir

42. spurningaþraut: Eldflaugar, múrar og kettir

Þá er hér komin 42. spurn­inga­þrautin, og þið svarið fyrst auka­spurn­ing­unni: Hvaða atburður sést á mynd­inni hér að ofan?

Og hver skóp stytt­una á mynd­inni hér að neðan?

En spurn­ing­arnar tíu eru þessar:

1.   Banda­ríkja­menn náðu for­skoti í eld­flauga- og geim­ferða­kapp­hlaupi við Sov­ét­menn meðal ann­ars vegna þess að þeir höfðu í þjón­ustu sinni þýskan vís­inda­mann og eld­flauga­sér­fræð­ing, sem áður hafði unnið fyrir Adolf Hitler. Hvað hét sá armi þrjótur?

2.   Margrét 2. Dana­drottn­ing er nátt­úr­lega dóttir Dana­kóngs, sem í hennar til­felli hét Friðrik 9., en móðir hennar var kon­ungs­dóttir úr öðru landi. Hvaða landi?

3.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Montevideo?

4.   Frá hvaða landi kemur fót­bolta­kapp­inn Luis Suárez, sem nú leikur með Barcelona?

5.   Í Bibl­í­unni er því lýst þegar Ísra­els­menn mar­sera kringum borg eina með svo ógn­ar­legum lúðra­blæstri að múrar hennar hrynja. Hver er borgin?

6.   Hvað kall­ast kött­ur­inn í sög­unni um Lísu í Undra­landi sem getur látið sig hverfa uns ekk­ert er eftir nema glottið?

7.   Hver er lengsta og þyngsta hvala­teg­undin?

8.   Hvað hét íslenska hljóm­sveitin sem söng um Pamelu í Dallas fyrir ein­hverjum ára­tugum?

9.   Önnur íslensk hljóm­sveit hætti störfum fyrir fjórum árum, mörgum til sorgar, því hljóm­sveitin var ansi vin­sæl. Meðlimir voru margir en á enga hallað þótt þekkt­astir þeirra séu taldir bræð­urnir Logi Pedro og Unn­steinn Manuel. Hvað hét hljóm­sveitin?

10.   Hvað heitir utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna?

Hér eru svörin:

1.   Wernher von Braun.

2.   Svíþjóð.

3.   Úrúgvæ.

4.   Úrúgvæ.

5.   Jeríkó.

6.   Cheshire-kött­ur­inn.

7.   Steypireyður.

8.   Dúkkulís­urnar. Athugið að hér var rangt svar hjá mér í fyrstu. Algjör skömm!

9.   Retro Stefson.

10.   Mike Pompeo.

Svör við auka­spurn­ingum:

Styttuna gerði franski mynd­höggv­ar­inn Rodin.

Myndin efst er hins vegar hluti af frægri ljós­mynd sem tekin var þegar sov­éskur her­maður setti rauðan fána á þýska þing­húsið við lok síð­ari heims­styrj­aldar 1945.

Svona lítur hún út í heild:

En hér eru spurn­ingar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár