40. spurningaþrautin: Hin létta Íslandssaga

40. spurningaþrautin: Hin létta Íslandssaga

Það er ekki seinna vænna að koma upp hefðum. Nú er að kom­ast á sú hefð að tíunda hver spurn­inga­þraut fjalli öll um eitt til­tekið efni. Þessi fer­tug­asta spurn­inga­þraut fjallar því öll um Íslands­sögu.

Auka­spurn­ing­arnar eru þessar, og líka úr Íslands­sög­unni:

Hvaða atburður á sér stað á mynd­inni hér að ofan?

Og hvaða karl­maður er á mynd­inni hér að neðan?

1.   Samkvæmt fornum heim­ildum á Ingólfur Arnarson að hafa verið fyrsti land­náms­maður Íslands. Hvað hét fóst­bróðir hans, sem kom hingað með honum og týndi hér líf­inu? Fornafn hans dugar.

2.   Hver var fyrsta konan sem varð ráð­herra á Íslandi?

3.   Hvar var háð eina sjóorr­ustan á Sturl­unga­öld við Íslands­strendur?

4.   Hvaða dag var Ísland hernumið af Bretum í síð­ari heims­styrj­öld?

5.   Í stríð­inu komu Bretar og síðar Banda­ríkja­menn sér upp flota­stöð í Hval­firði og flotar þeirra höfðu einnig mikil umsvif á Akureyri og ... hvar? Hvar var þriðja helsta flota­bæki­stöð þeirra á Íslandi í stríð­inu?

6.   Haustið 2008 stóð til að ríkið kæmi til aðstoðar íslenskum banka og er sá atburður tal­inn marka upp­haf efna­hags­hruns­ins. Hvaða banki var það?

7.   Hvað hét fyrsta eig­in­lega sóló­plata Bjarkar Guð­munds­dóttur, sú sem sló í gegn úti í hinum stóra, stóra heimi?

8.   Hver var fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem gerð­ist atvinnu­maður í fót­bolta úti í hinum sama stóra heimi?

9.   Árni Magn­ús­son fór um landið í erindum Dana­kóngs í byrjun 18. aldar, gerði mann­tal, skoð­aði aðstæður allar og rann­sak­aði stjórn­ar­far og dóma­fram­kvæmdir. Hann var reyndar ekki einn á ferð. Hvað hét félagi hans í þessum leið­angri?

10.   Bjarni Valdemar Tryggva­son fædd­ist í Reyjavík 21. sept­em­ber 1945. Hvað er til­kall hans við frægðar?

  Svörin:

1.   Hjör­leifur.

2.   Auður Auðuns.

3.   Á Húnaflóa.

4.   10. maí 1940.

5.   Á Seyð­is­firði.

6.   Glitnir.

7.   Debut.

8.   Albert Guð­munds­son.

9.   Páll Vídalín.

10.   Hann gerð­ist geim­fari, reyndar undir kanadískum fána en til Kanada fór hann með fjöl­skyldu sinni aðeins 7 ára.

Og auka­spurn­ing­arnar:

Efri myndin er frá þeirri athöfn þegar Ísland varð full­valda 1. des­em­ber 1918.

Neðri myndin er af Guðmundi Kjærne­sted skip­herra í þorska­stríðum tvö og þrjú.

Hér er svo næsta spurn­inga­þraut á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár