39. spurningaþrautin: Forseti Kína og fjórar konur

39. spurningaþrautin: Forseti Kína og fjórar konur

Nú er allt eins og venju­lega. Tvær auka­spurn­ingar. Hvaða kall­ast sú katt­ar­teg­und sem er á efri mynd­inni?

Og á hvaða hljóð­færi er karl­inn hér að neðan að spila? 

En hinar tíu aðal­spurn­ingar eru svona:

1.   Hvað heitir for­seti Kína? Eft­ir­nafnið - það er að segja fyrra nafnið í til­felli Kínverja - dugar.

2.   Árið 2010 var til­kynnt í Reykja­vík að fjórar götur hefðu fengið ný nöfn og myndu eft­ir­leiðis heita eftir Bríeti Bjarn­héð­ins­dóttur, Katrínu Magn­ús­dóttur, Guðrúnu Björns­dóttur og Þórunni Jónassen. Hvað gerðu þessar fjórar konur til þess að þær voru heiðr­aðar saman með þessum hætti?

3.   Hvar í Portúgal fædd­ist Cristiano Ronaldo dos Santos Aveiro fót­bolta­kappi?

4.   Hvað heitir nýjasta skáld­saga Hall­gríms Helga­sonar þar sem segir frá líf­inu í firði einum?

5.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Brat­islava?

6.   Hversu hár er stóri píramíd­inn í Giza núna? Hér má skeika 5 metrum til eða frá.

7.   Hversu margir eru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú? Hér má engu skeika.

8.   Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Kona fer í stríð?

9.   Hver var skyld­leiki ind­versku sjálf­stæð­is­hetj­unnar Mahatma Gandhi og for­sæt­is­ráð­herr­ans Indiru Gandhi?

10.   Hvaða algengi fugl hefur lat­neska fræði­heitið plu­vi­alis apricaria?

Hér eru svörin:

1.   Xi Jinping. Því dugar Xi.

2.   Þær voru fyrstu kon­urnar sem náðu kjöri í bæj­ar­stjórn Reykja­víkur.

3.   Madeira.

4.   Sextíu kíló af sól­skini.

5.   Slóvakíu.

6.   138,8 metrar.  Rétt er því 133 til 145 metrar.

7.   Sextán.

8.   Benedikt Erlings­son.

9.   Hann var eng­inn.

10.   Heiðlóa.

Kött­ur­inn kall­ast pers­neskur.

Karlinn er að spila á óbó.

Hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár