38. spurningaþrautin: Tennisleikarinn Federer, og hver er Dick Grayson?

38. spurningaþrautin: Tennisleikarinn Federer, og hver er Dick Grayson?

Byrjum á vís­bend­inga­spurn­ing­unum.

Hver mál­aði mál­verkið hér að ofan?

En hvað nefn­ist unga konan hér að neðan?

Athugið að ég er búinn að skipta út einni af spurn­ing­unum 10 hér að neðan, hún var óþarf­lega flókin.

1.   Tennis­leik­ari einn heitir Roger Federer og ein­hver sá allra sig­ur­sæl­asti í heimi. Frá hvaða landi kemur pilt­ur­inn?

2.  Dick nokkur Grayson er eða öllu heldur var helsti hjálp­ar­kokkur afar frægrar per­sónu. Nú á seinni árum gengur Dick Grayson stundum undir nafn­inu Nightwing en hvað var eldra við­ur­nefni hans, og miklu fræg­ara?

3.   Sagt er að þegar Jón Arason var lagður á högg­stokk hafi hann beðið að heilsa „Sigurði dóttur minni og [x] syni sínum“ en [x] kemur hér í stað­inn fyrir nafnið á upp­á­halds­dóttur hans. Biskup taldi sem sé að meiri töggur væri í dótt­ur­inni en syn­inum Sigurði. Hvað hét þessi dóttir?

4.   Hvaða fjöll eru á mótum Frakk­lands og Spánar?

5.   Við hvað starfar Ragnar Aðal­steins­son og hefur gert í ára­tugi?

6.   Hvað nefn­ist efsti hluti þar­manna í melt­ing­ar­veg­inum, þar sem fæðan lendir þegar hún fer úr mag­anum?

7.   Hvaða fugl er frægastur fyrir að verpa í hreiður ann­arra fugla og láta þá sjá um upp­eldi ung­anna?

8.   Hið gamla Indland skipt­ist nú í þrjú ríki: Indland, Pakistan og Bangla Desj. Í öllum þessum löndum þykir jafn­rétti kynj­anna ekki alveg upp á tíu, þótt það sé nokkuð mis­jafnt eftir löndum. En þessi þrjú lönd deila þó ákveðnum áfanga í jafn­rétt­is­málum sem ekki nærri öll lönd önnur hafa náð. Hver er hann?

9.   Á sínum tíma var und­ir­ritun hins svo­nefnda Gamla sátt­mála milli íslenskra höfð­ingja og Nor­egs­kon­ungs talin einn mesti sorg­ar­at­burður Íslands­sög­unnar. Nú kann fleira að vera málum blandið um þennan sátt­mála en áður var haldið, en hvaða ár er yfir­leitt nefnt í tengslum við und­ir­ritun hans? 

10.  Hvaða dýra­teg­undir á landi uppi eru skyldastar hvöl­unum í sjónum?

Svörin tíu:

1.   Sviss.

2.  Robin, aðstoð­ar­maður Batmans.

3.   Þórunn.

4.  Pýrenea­fjöll.

5.   Lög­mennsku.

6.  Skeifu­görn.

7.   Gaukur.

8.   Í öllum lönd­unum hafa konur orðið for­sæt­is­ráð­herrar: Indira Ghandi á Indlandi 1966, Benazir Bhutto í Pakistan 1988 og Sheik Hasina í Bangla Desj 1996. Ekki er þó nauð­syn­legt að vita nöfn þeirra.

9.   1262.

10.  Klaufdýr (naut­gripir, svín, dádýr, kamel­dýr, flóð­hestar, kindur, geitur o.s.frv.).

Og svörin við auka­spurn­ing­unum:

Jóhannes Kjarval mál­aði mynd­ina.

Stúlkan gekk þá undir nafn­inu Melania Knavs en nú Melania Trump.

Og hér eru svo spurn­ingar gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár