37. spurningaþrautin: Hvaða kona varð fyrir V-1 flugskeyti, og hvaða karl er svo glottuleitur?

37. spurningaþrautin: Hvaða kona varð fyrir V-1 flugskeyti, og hvaða karl er svo glottuleitur?

Auka­spurn­ing­arnar eru báðar um unga karl­menn sem þið eigið að þekkja í sjón.

Hver er sá efri hér að ofan?

Og hver er sá neðri hér að neðan?

En þá eru það venju­legu spurn­ing­arnar tíu.

1.   Hver var fyrsta konan sem varð for­sæt­is­ráð­herra í ein­hverju Norð­ur­land­anna?

2.   Í hvaða ríki voru svo­nefndir Ottómanar við völd?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Íran?

4.   Hvaða banda­ríski öld­unga­deild­ar­þing­maður frá Kali­forníu slóst um að verða for­seta­efni Demókrata en varð að draga sig í hlé? Nú er hún hins vegar talin ein þeirra sem helst koma til álita sem vara­for­seta­efni Joe Bidens.

5.   „Allir vildu Lilju kveðið hafa,“ er orð­tak eitt hér­lendis. En hver er tal­inn hafa kveðið Lilju?

6.   Hvað heitir flug­véla­teg­undin sem tekin var úr notkun á síð­asta ára eftir tvö alvar­leg flug­slys, og bitn­aði til dæmis illa á Icelandair sem átti slíkar flug­vélar?

7.   Vera Menchik hét kona ein og þótti leift­ur­snjöll og lét heil­mikið að sér kveða á sviði þar sem karl­menn einir höfðu verið í fremstu röð fram að því. Hún fædd­ist í Moskvu, var mjög tékk­neskrar ættar en sett­ist að í London og dó þegar hún varð fyrir V-1 eld­flauga­sprengju Þjóð­verja 1944. Hvert var sér­svið Veru Menchik?

8.   Hver hefur hlotið flest Ósk­arsverð­laun fyrir leik í bíó­myndum vestan hafs?

9.   Hversu marga syni átti Njáll Þor­geirs­son, bóndi á Berg­þórs­hvoli?

10.   Hvaða þétt­býl­is­staður er við Norð­fjörð?

Svörin eru þessi:

1.   Gro Harlem Brundtland í Noregi.

2.   Tyrk­landi.

3.   Tehran.

4.   Kamala Harris.

5.   Eysteinn munkur.

6.   Boeing 737 MAX.

7.   Skák. Hún var fyrsti heims­meist­ari kvenna.

8.  Katherine Hepburn.

9.  Fjóra: Skarp­héðin, Grím, Helga með spúsu sinni og svo Höskuld nokkurn utan dag­skrár.

10.   Nes­kaup­staður.

Auka­spurn­ing­arnar:

Efri ungi mað­ur­inn er Pete Best sem var fyrri trommari Bítlanna.

En neðri ungi mað­ur­inn er Charles de Gaulle, franskur hers­höfð­ingi og síðar for­seti.

Loks er svo hægt að sjá spurn­ingar frá í gær hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár