Spurningaþraut 36: Fjögur flugvélamóðurskip, tvær konur, einn staður

Spurningaþraut 36: Fjögur flugvélamóðurskip, tvær konur, einn staður

Þá eru hér spurn­ingar:

Auka­spurn­ing­arnar eru þessar:

Á efri mynd­inni er karl nokkur í hlut­verki trans­konu í nýlegri sjón­varps­s­eríu. Áður hafði karl­inn gert garð­inn frægan í langri röð sjón­varps­mynda þar sem hann lék lög­reglu­mann nokkurn. Hvað hét sú per­sóna?

Og hver er konan á neðri mynd­inni?

Aðal­spurn­ing­arnar tíu eru þessar:

1.    Hversu langt er frá Gróttu­vita á Sel­tjarn­ar­nesi í beinni sjólínu upp á Akranes? Hér má skeika tveim kíló­metrum til að frá.

2.   Hver samdi Hetjus­in­fón­í­una?

3.   Í hvaða landi fædd­ist söng­konan Maria Callas?

4.   Enn eru ýmis karla­vígi í sam­fé­lag­inu. Þær Greta Bald­urs­dóttir og Ing­veldur Ein­ars­dóttir eru til dæmis í öruggum minni­hluta hjá til­tek­inni stofnun sam­fé­lags­ins, þar sem löngum hefur hallað á konur og gerir sem sé enn. Hvar eru þær Greta og Ing­veldur nið­ur­komnar?

5.   Árið 1704 réðst sam­ein­aður floti Breta og Hol­lend­inga á svo­lít­inn stað á ver­ald­ar­kúl­unni og lét 15.000 fall­byssu­kúlum rigna yfir stað­inn. Fátt varð um varnir og íbú­arnir flúðu á brott. Inn­rás­ar­lið frá bresku her­skip­unum fór í land og tók stað­inn. Bretar stóðu svo af sér umsátur fyrrum íbúa og landa þeirra nokkrum sinnum næstu ára­tugi. Þessum stað halda Bretar enn, þrátt fyrir að mörgum finn­ist slík yfir­ráð tíma­skekkja. Hvaða staður er þetta?

6.   Hvar er ríkið Belize?

7.   Megan Rapinoe heitir fræg­asta fót­bolta­kona heims um þessar mundir, sókn­ar­væng­maður í lands­liði Banda­ríkj­anna, auð­þekkj­an­leg á sínu aflit­aða og stundum bleika hári. Tví­bura­systir hennar Rachel spil­aði með íslensku liði fyrir tíu árum. Hvaða lið var það?

8.   Hver leysti Egil Helgason af í Kiljunni á vor­mán­uðum?

9.   Kaga, Akagi, Hiryū og Sōryū hétu flug­véla­móð­ur­skip í jap­anska stríðs­flot­anum sem öllu sukku í einni orr­ustu sum­arið 1942. Þar má að segja úrslitin í Kyrra­hafs­stríð­inu hafi ráð­ist, því þaðan í frá voru Japanir lítt færir um sókn­ar­að­gerðir á haf­inu. Hvað kall­ast sá slagur?

10.   Hvað heitir for­maður Mið­flokks­ins?

Hér eru svörin:

1.   Um það bil 16, svo við segjum að 14-18 sé rétt.

2.   Ludwig van Beethoven.

3.   Banda­ríkj­unum.

4.   Þær sitja í Hæsta­rétti.

5.   Gibraltar.

6.   Mið-Ameríku.

7.   Stjarnan.

8.   Berg­steinn Sig­urðs­son.

9.   Orrustan við Midway.

10.   Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Þá eru hér svörin við auka­spurn­ing­unum:

Lög­reglu­mað­ur­inn í sjón­varps­mynd­unum hét Kurt Wallander. Leik­ar­inn er Krister Hend­riks­son.

Konan er Maria Callas.

Og hér eru spurn­ingar frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár