Spurningaþraut 34: Hvað hét faðir Hitlers, og hver leikstýrði Bubba?

Spurningaþraut 34: Hvað hét faðir Hitlers, og hver leikstýrði Bubba?

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­myndin hér að ofan?

Og krakki er á mynd­inni hér örlítið neðar?

Þetta eru auka­spurn­ing­arnar, en þær tíu venju­legu eru þessar:

1.   Rétt fyrir Covid-19 lokun sam­fé­lags­ins hafði Borg­ar­leik­húsið náð að frum­sýna söng­leik um Bubba Morthens. Hver samdi og leik­stýrði þeim söng­leik?

2.   Adolf Hitler hét maður. En hvað hét faðir hans - þá meina ég að for­nafni?

3.   Annar Adolf hét Eichmann og var líka nas­ista­svín. Hann bar per­sónu­lega ábyrgð á dauða fjölda Gyðinga. Árið 1960 var Eichmann gómaður af Ísra­els­mönnum eftir að hafa farið huldu höfði frá lokum seinni heims­styrj­aldar. Hann var síðan leiddur fyrir ísra­elskan rétt og dæmdur til dauða. En í hvaða landi var Eichmann hand­tek­inn af Ísra­els­mönnum?

4.   Hvað hét fyrsta konan sem sett­ist á Alþingi?

5.   Hvað heitir höf­uð­borg Sádi-Arabíu?

6.   Í bók nokk­urri kemur fyrir Séra-Guð­mundar-kynið. Hvaða kyn er það?

7.   Hvað hét þriðja og síð­asta plata hljóm­sveit­ar­innar Nirvana?

8.   Páll post­uli er í heim­ildum sagður vera frá borg­inni Tarsus. Í hvaða ríki er hún núna?

9.   Hver skrif­aði bók­ina um Múmínálf­ana?

10.   Við hvað fékkst Anna Akhmatova í líf­inu?

Og hér eru svörin:

1.   Ólafur Egill Egilsson.

2.   Alois.

3.   Argent­ínu.

4.   Ingi­björg H. Bjarna­son.

5.   Ríad.

6.   Fjárkyn, úr skáld­sögu Halldórs Laxness, Sjálf­stæðu fólki.

7.   In Utero.

8.   Tyrk­landi.

9.   Tove Jansson.

10.   Hún var ljóð­skáld. Rit­höf­undur dæm­ist því líka vera rétt.

Hér eru svörin við auka­spurn­ing­unum:

Inter­stellar - hét bíó­myndin.

Angela Merkel - krakk­inn.

Hérna er svo næsta spurn­inga­þraut á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár