Spurningaþraut 32: Verstu drottningar sögunnar, og fleira

Spurningaþraut 32: Verstu drottningar sögunnar, og fleira

Þá er komið að „10 af öllu tagi“ í 32. sinn.

Auka­spurn­ingar:

Hvaða far­ar­tæki er á mynd­inni hér að ofan?

Og hvað nefn­ist ill­yrmis­legri bol­inn á mynd­inni að neðan?

En aðal­spurn­ing­arnar eru 10:

1.   Bræður tveir standa á bak við geysi­vin­sæla banda­ríska sjón­varps­s­eríu er nefnd­ist á frum­mál­inu Stranger Things og fjallar um ýmsa yfir­nátt­úru­lega atburði. Hvað heita þeir bræður, og hér dugar eft­ir­nafn þeirra?

2.   Hver er höf­uð­borgin í Ástralíu?

3.   Í orr­ust­unni við Waterloo í Belgíu átt­ust við her­for­ingj­arnir Napóleon keis­ari og Wellington her­togi. Í aðeins einu landi í heim­inum eru til borgir sem heita öllum þessum þremur nöfnum: Waterloo, Napoleon og Wellington. Hvaða land er það?

4.   Drottn­ing ein í Kastilíu, sem þá var sjálf­stætt ríki á Pýrene­a­skaga, er ekki síst fræg fyrir að hafa kostað leið­angur Krist­ó­fers Kól­umbusar yfir Atl­ants­hafi sem end­aði með her­námi Evr­ópu­manna og hroða­legum hörm­ungum fyrir frum­byggja vest­an­hafs. Hvað hét þessi skamm­sýna drottn­ing?

5.   En það næst­fræg­asta sem drottn­ingin tók sér fyrir hendur var raunar litlu skárra. Hún kom, ásamt eig­in­manni sínum, árið 1478 á fót fyr­ir­bæri sem átti eftir að valda miklum deilum, sundr­ungu, kúgun og ofsóknum og kosta fjölda manns lífið. Hvaða fyr­ir­bæri var þetta?

6.   Árið 797 eftir Krist komst Írena nokkur til valda í gam­al­grónu ríki og varð fyrst kvenna til þess. Það er óhætt að segja að hún hafi ekki farið troðnar slóðir í hásætið, vegna þess að hún hrifs­aði völdin af syni sínum og lét stinga úr honum augun, svo hann kæm­ist ekki í hásætið að nýju. Kon­stantín hét sá piltur. Í hvaða ríki náði Írena völdum?

7.   Hver er algeng­asti blóð­flokk­ur­inn í heim­inum, en honum til­heyra 40 til rúm­lega 50 pró­sent mann­kyns? Hér þarf bæði bók­staf og plús eða mínus.

8.   Árið 1982 tóku Bras­il­íu­menn að venju þátt í heims­meist­ara­mót­inu í fót­bolta. Þeir sendu frá­bært lið á vett­vang, en það náði þó ekki alla leið, því miður. Hver var fyr­ir­liði þessa sögu­fræga liðs?

9.   Hvað heitir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar?

10.   Um hvaða höfn í heim­inum fer mestur varn­ingur?

1.   Duffer heita þeir, Matt og Ross nánar til­tekið.

2.   Canberra.

3.   Banda­ríkin.

4.   Ísabella.

5.   Spænska rann­sókn­ar­rétt­inum.

6.   Mikla­garði, Býsans­rík­inu, Aust­ur­róm­verska rík­inu - þetta er allt rétt. Það er hins vegar rangt að segja Róma­veldi.

7.   O plús.

8.   Socrates.

9.   Unnur Sverr­is­dóttir.

10.   Sjanghæ í Kína.

Svörin við auka­spurn­ing­unum:

Far­ar­tækið er tungl­bíll­inn sem þrjú Appollo-geim­för Banda­ríkja­manna fluttu til tungls­ins fyrir tæpum 50 árum.

Dýrið er gnýr.

En hér er svo spurn­inga­þrautin frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár