Spurningaþraut 31: Lúxusbílarnir Zil, hvaðan komu þeir?

Spurningaþraut 31: Lúxusbílarnir Zil, hvaðan komu þeir?

Þá eru hér spurn­ing­arnar tíu, og auka­spurn­ing­arnar:

Frá hvaða stað á Íslandi er myndin hér að ofan?

Og hver er karl­inn á mynd­inni að neðan?

1.   Hér er spurt um banda­ríska tón­list­ar­konu, sem hét við fæð­ingu Angela Trimble en var ætt­leidd aðeins þriggja mán­aða og fékk þá nýtt nafn. Hún er nú að verða hálf­átt­ræð, en slakar hvergi á í töffara­skapnum. Meðal náinna sam­verka­manna hennar gegnum tíð­ina eru Jimmy Destri og Clem Burke og þó allra lengst Chris Stein. Hvað var hið nýja nafn Angelu Trimble?

2.   Hvað heitir haf­svæðið milli Norður- og Suður-Ameríku?

3.   Zil hétu lúx­us­bílar sem til skamms tíma voru fram­leiddir í Evr­ópu­ríki einu. Hvaða ríki var það?

4.   Lili'uoka­l­ani hét drottn­ing ein sem steypt var af stóli í heima­landi sínu árið 1893. Sett var á stofn lýð­veldi en það fór allt í vaskinn og sex árum seinna inn­lim­uðu Banda­ríkin ríki drottn­ingar. Hvar var það ríki?

5.   Hvað kall­að­ist sá sænski kóngur sem gerði inn­rás í Rússland í upp­hafi 18. aldar en beið lægri hlut og dó loks við umsátur við virki í Noregi?

6.   Hvað hét sú íslenska hljóm­sveit sem gaf út plöt­una Emotional árið 2005, þar sem meðal ann­ars er að finna lögin Nasty Boy og The One.

7.   Þjóð­há­tíð­ar­dagur Íslands er 17. júní. Til minn­ingar um hvað varð hann fyrir val­inu?

8.   Hver skrif­aði bók­ina Und­an­tekn­ingin, sem út kom 2012?

9.   Frá hvaða landi er fót­bolta­mað­ur­inn Robert Lewandowski?

10.   Egg eru afar vítamín­rík, eins og allir vita. En hvað af hinum helstu vítamínum er EKKI að finna í eggjum?

Svörin:

1.   Debbie Harry, söng­kona Blondie.

2.   Karí­ba­haf.

3.   Sov­ét­ríkj­unum, síðan Rúss­landi, svo hvorttveggja er rétt.

4.   Á Hawaii-eyjum.

5.   Karl 12.

6.   Trabant.

7.   Fæðingu Jóns Sig­urðs­sonar árið 1811.

8.   Auður Ava Ólafs­dóttir.

9.   Póllandi.

10.   C.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Myndin að ofan er frá Öskju­vatni.

Karlinn er Hilmir Snær Guðnason í hlut­verki sínu í leik­rit­inu Fást.

Hér er svo þrautin frá í gær.

        

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár