Spurningaþraut 28: Tunglvana plánetur, Rómarkeisari og stríðsforseti

Spurningaþraut 28: Tunglvana plánetur, Rómarkeisari og stríðsforseti

Þetta er 28. spurn­inga­þrautin.

Auka­spurn­ingar eru þessar:

Hver er sú hin hnellna stúlka sem arkar á óþekktri gang­stétt hér að ofan?

Myndina hér að neðan mál­aði einn nafn­kunn­asti mynd­list­ar­maður heims á 20. öld. Hann hét hvað?

En hér er svo spurt:

1.   Rómúlus Ágústulus nefnd­ist einn Róm­ar­keis­ara til forna. Fyrir hvað er hans einkum minnst?

2.  Annar frægur karl, öllu yngri, var fæddur í Banda­ríkj­unum og hét Frank Lloyd Wright. Hvað var nú hans til­kall til frægðar og frama?

3.  Reiki­stjörnur við sól­ina eru átta, fyrir utan þó nokkrar dverg­plánetur. En af þessum átta hafa allar - nema tvær - eitt eða fleiri tungl á braut um sig. Hverjar eru þessar tvær? Vit­an­lega verður að nefna báðar.

4.   Hvað er eina dæmi Íslands­sög­unnar um að litur á skipi hafi orðið til­efni yfir­lýs­inga í fréttum?

5.   Hvað nefn­ist haf­svæðið milli Ítal­íu­skaga og Balkanskaga þar sem ríki fyrrum Júgóslavíu eru hvert af öðru við strönd­ina? 

6.   Hver er heil­brigð­is­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn?

7.   Hver var Banda­ríkja­for­seti meðan fyrri heims­styrj­öldin geis­aði svo hart?

8.   Hver var nýlega ráðin rit­stjóri DV?

9.   Hvað heitir stærsta eyjan í Ísa­fjarð­ar­djúpi?

10.   Lýra Belacqua er 11 ára gömul hug­rökk stúlka, sem heldur á slóðir ísa og norð­ur­ljósa í leit að týndum börnum. Í heimi hennar búa, auk venju­legs fólks, fylgjur, nornir, talandi birnir, Sígyptar svo­kall­aðir og ýmsar fleiri kynja­verur. Hvað heitir sú bók, þar sem ferða­lagi Lýru er lýst?

Þá eru hér svörin:

1.   Hann var síð­asti keis­ar­inn í vestur-róm­verska rík­inu. „Síðasti keis­ari Róma­veldis“ dugar alveg, þótt ekki sé það tækni­lega alveg nákvæmt, þar sem eystri hluti Róma­veldis hélt velli í tæp þús­und ár eftir það.

2.   Arki­tektúr.

3.    Merkúr og Venus.

4.  Þegar Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja keypti Ísa­fjarð­ar­togar­ann Guð­björgu en lof­aði því að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði með orð­unum: „Guggan verður áfram gul.“ Hann stóð reyndar ekki við lof­orðið, en það er önnur saga.

5.   Adríahaf.

6.   Svandís Svav­ars­dóttir.

7.   Woodrow Wilson, reyndar dugir að nefna eft­ir­nafn hans.

8.   Þorbjörg Mar­in­ós­dóttir. Hún er yfir­leitt alltaf kölluð Tobba Marinós, svo það dugar alveg.

9.   Æðey.

10.   Bókin heitir Gyllti átta­vit­inn. Hún er eftir Philip Pullmann, en það er ekki nauð­syn­legt að muna.

Svör við auka­spurn­ingum:

Stúlkan óx úr grasi og kall­ast nú Elísabet 2. Breta­drottn­ing.

Mál­verkið mál­aði Marc Chagall.

Svo er hérna þraut gær­dags­ins. Reynið ykkur við hana líka!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár