Spurningaþraut 24: Eina ríkið í heiminum sem heitir eftir konu, og fleira

Spurningaþraut 24: Eina ríkið í heiminum sem heitir eftir konu, og fleira

24. spurn­inga­þrautin er mætt.

Auka­spurn­ing 1: Úr hvaða sjón­varps­þætti er myndin hér að ofan?

Auka­spurn­ing 2:  Hvað heitir hunda­teg­undin á mynd­inni hér að neðan?

1.   Ainú kall­ast frum­byggjar á til­teknu svæði. Ainú-menn eru nú til­tölu­lega fáir og lítt þekktir, en í hvaða landi búa þeir?

2.   Stúlka ein hét Angela eða „Geli“ Raubal og er því miður þekkt­ust fyrir að hafa svipt sig lífi. En hver var hún?

3.   Í hvaða skáld­sögu Halldórs Laxness kemur fyrir per­sónan Org­anist­inn?

4.   Furðu mörg ríki í ver­öld­inni heita eftir fólki, en þar á meðal er aðeins eitt sem heitir eftir konu. Hvaða ríki er það?

5.   Auður djúpúðga nefnd­ist land­náms­kona ein, sam­væmt fornum sögum. Hún var kristin og þótti bæði vitur og væn. En í sumum heim­ildum er hún ekki nefnd Auður, heldur öðru nafni. Hvað er það?

6.   Hver skrif­aði hinar svo­nefndu „Fimm-bækur“?

7.  Hver hlaut fyrr á árinu Ósk­arsverð­laun fyrir auka­hlut­verk karla?

8.  Hver skrif­aði fyrir fáeinum árum skáld­sögu sem mælt­ist vel fyrir, hét Eyland og fjall­aði um það þegar allt sam­band Íslands við umheim­inn rofn­aði með dul­ar­fullum hætti?

9.  Hvað þýðir franski fras­inn „c’est la vie“ (se-la-ví) sem oft er not­aður í öðrum tungu­málum?

10.  Alvarleg hung­ursneyð reið yfir Írland 1845 þegar upp­skera á hvaða nytja­jurt brást?

Svörin:

1.   Japan

2.   Náfrænka Adolfs Hitlers.

3.   Atóm­stöð­inni.

4.   St.Lucia, eyríki í Karí­ba­hafi.

5.   Unnur djúpúðga.

6.   Enid Blyton.

7.   Brad Pitt.

8.  Sigríður Hagalín.

9.   „Svona er lífið.“

10.   Kartöflu.

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin efst er úr Breaking Bad.

Hvuttinn er hins vegar Stór-Dani.

Og hér eru spurn­ing­arnar frá í gær.

Hér er svo sú næsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár