Spurningaþraut 23: Guðfaðirinn, Svarta ekkjan og Krummi

Spurningaþraut 23: Guðfaðirinn, Svarta ekkjan og Krummi

23. spurn­inga­þrautin er svona:

Auka­spurn­ing­arnar eru tvær.

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

Og hver er kona sú sem er á mynd­inni að neðan?

1.   Eiður Smári Guðjohn­sen var í sex ár í fram­línu enska fót­boltaliðs­ins Chelsea og gekk mjög sóma­sam­lega. Fyrstu fjögur árin var í fram­lín­unni með honum hnar­reistur Hol­lend­ingur og þóttu þeir ná sér­lega vel saman. Hvað heitir sá hol­lenski?

2.   Hvað heitir það dýr á íslensku sem kall­ast Cheetah á eng­elsku?

3.   Davíð Oddsson er sem kunn­ugt er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Hvað heitir hinn rit­stjór­inn?

4.   Hvað heitir söngv­ar­inn í þýsku gleði­sveit­inni Ramm­stein?

5.   Bíó­myndir Francis Ford Coppola um Guð­föð­ur­inn eru víðkunnar. En hvað hét rit­höf­und­ur­inn sem skrif­aði sög­urnar sem fyrsta myndin var byggð á?

6.   Í árdaga íslenska sjón­varps­ins var barna­tím­inn í umsjón leik­brúðu af Krumma og ungrar stúlku, og þótti börnum spjall þeirra hið ánægju­leg­asta. Hvert var (og er) nafn stúlkunnar? Hér dugar for­nafn.

7.   Hvert var til­kall banda­rísku stjórn­mála­kon­unnar Ger­aldine Ferraro til frægðar?

8.   Skemmti­garðar kenndir við Disney eru sex tals­ins. Tveir eru í Banda­ríkj­unum, einn í Evrópu en þrír í Asíu. Í hvaða tveimur löndum eru þeir?

9.   Stúlka ein bar nafnið Sophie Friederike Auguste von Anhalt-Zerbst-Dornburg og var prinsessa í þýsku smá­ríki fyrir tæpum þrem öldum síðan. Ekki virt­ist Sophie lík­leg til mik­illa frægð­ar­verka á ungum aldri, en þó gerð­ist það að hún fór úr sínu þýska smá­ríki og hasl­aði sér völl í öðru landi og ansi miklu stærra. Þar varð Sophie mikil valda­per­sóna en að vísu undir öðru nafni, því þegar hún hófst til áhrifa í hinu stærra landi varð hún að skipta um nafn. Undir hvaða nafni varð hún fræg?

10.   Hver leikur Svörtu ekkj­una í bíó­myndum um ofur­hetj­urnar Avengers?

Hér eru svörin:

1.    Jimmy Floyd Hassel­baink.

2.   Bletta­tígur.

3.   Haraldur Johann­es­sen.

4.   Till Lindem­ann.

5.   Mario Puzo.

6.   Rannveig.

7.   Fyrst kvenna í fram­boði til vara­for­seta Banda­ríkj­anna, það var árið 1984.

8.   Þeir eru tveir í Kína og einn í Japan. Annar kín­versku garð­anna er í Hong Kong sem nýtur nokk­urrar sjálf­stjórnar í Kína­veldi en telst þó hluti af kín­versku landi.

9.   Katrín - Katrín mikla keis­ara­ynja í Rúss­landi.

10.  Scarlett Johans­son.

Efri myndin er tekin í upp­reisn Ungverja gegn Sov­ét­ríkj­unum 1956.

Neðri myndin er af Völu Flosa­dóttur íþrótta­hetju.

Og hér er þrautin frá í gær.

Hér er hins vegar sú næsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár