Spurningaþraut 22: Lof mér að falla, og reykvískur sundstaður

Spurningaþraut 22: Lof mér að falla, og reykvískur sundstaður

22. spurn­inga­þrautin er svona:

Fyrst auka­spurn­ingar eru tvær eins og vana­lega:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá aðstand­endur leik­sýn­ingar eða öllu heldur söng­leiks í Þjóð­leik­hús­inu. Stykkið var sett upp fyrir fjórum árum. Hvað skyldi þessi söng­leikur hafa heitið?

Og and­dyri hvaða sund­staðar í Reykja­vík má sjá á mynd­inni milli spurn­inga og svara?

Og aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Asjoka hét keis­ari einn grimmur sem réði víð­lendu ríki sem nefnt er eftir ætt hans Máría. Hann er ekki síst merki­legur fyrir þá sök að eftir að hann barði niður með ofsa­legu ofbeldi upp­reisn gegn sér, þá blöskr­aði honum blóð­baðið, sneri alveg við blað­inu og gerð­ist mildur og sátt­fús. Hvað heitir nú það land þar sem Asjoka ríkti í Máría?

2.   Hver er nú for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar?

3.  Fyrir nokkrum árum var frum­sýnd hér á landi „Lof mér að falla“ sem þótti firna­sterk en átak­an­leg kvik­mynd um örlög fólks sem ánetj­ast fíkni­efna­djöfl­inum. Hver leik­stýrði henni?

4.   Árið 1980 varð gríð­ar­legt eld­gos í fjalli einu í Washington-ríki Banda­ríkj­anna þegar topp­ur­inn á fjall­inu bein­línis sundrað­ist og mikið gos­efna­flóð steypt­ist niður hlíð­arnar. Hvað hét fjallið?

5.   Hvað heitir stærsti þétt­býl­is­staður Skaga­fjarðar?

6.   Hvaða per­sóna í Múmíndal er með gull­hring á fæti?

7.   „Hljóðs bið eg allar / helgar kindir, / meiri og minni / mögu Heimdallar.“ Hvaða kvæði hefst svo?

8.   Með hvaða mekt­ar­konu átti Júlíus Caesar son­inn Caesarion?

9.  Hversu margar Facebook-vini er leyfi­legt að eiga?

10.  Við hvaða fljót stendur Vín­ar­borg?

Þá er að vinda sér í svörin:

1. Indlandi.

2. Stefan Löfven.

3. Baldvin Z.

4. St.Helens.

5. Sauð­ár­krókur.

6. Snork­stelpan.

7. Völuspæa

8. Kleópötru drottn­ingu í Egifta­landi.

9. 5.000.

10. Dóná.

Og svörin við auka­spurn­ing­unum eru þessi:

Söng­leik­ur­inn var Djöfla­eyjan eftir sögum Einars Kára­sonar.

Sund­laugin er Árbæj­ar­laug.

Þá eru hérna spurn­ing­arnar frá í gær.

En þær næstu hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár