Spurningaþraut 21: Hver var Soselo og hver er saurinn?

Spurningaþraut 21: Hver var Soselo og hver er saurinn?

Tuttug­asta og fyrsta spurn­inga­þrautin, hér er hún nú komin.

Auka­spurn­ingar eru tvær eins og vana­lega:

Hver mál­aði mál­verkið lit­ríka hér að ofan?

Og hver konan sem myndar hjartað svo elsku­ríkt?

En aðal­spurn­ing­arnar tíu eru:

1.   Karl­maður nokkur sá ungur ástæðu til að taka sér dul­nefni og er reyndar lang­frægastur undir einu frekar hörku­legu dul­nefni. En meðal þeirra sem hann not­aði fyrst voru dul­nefnin „Soselo“ og „Koba“. Hver er mað­ur­inn?

2.   Hversu löng eru Hval­fjarð­ar­göngin? Hér má skeika 300 metrum til eða frá.

3.   Hver var bassa­leik­ari Stuð­manna og Þursa­flokks­ins?

4.   Saurbæir eru margir á Íslandi. Hvað er talið að for­skeytið „saur“ merki?

5.   Hver hefur verið Banda­ríkja­for­seti lengur en nokkur annar?

6.   Hvaða fyr­ir­bæri er „Alpha Centauri“?

7.   Lag Daða Freys og Gagna­magns­ins, „Think About Things“, náði sem kunn­ugt er ekki að vinna Eurovision form­lega, þótt lagið hafi slegið ærlega í gegn. En hvað heitir íslensk útgáfa lags­ins, sem flutt var á undan hinni ensku?

8.  Hvað hét jap­anski flota­for­ing­inn er skipu­lagði og stýrði árásinni á Pearl Harbor í des­em­ber 1941?

9.   Hvað er serótónín?

10.   Kona nokkur fædd­ist árið 1913, lést árið 2005 og fékkst við ýmis­legt um ævina. Hún er samt lang­sam­lega fræg­ust fyrir það sem hún gerði EKKI árið 1955, og varð bæði umdeild og dáð fyrir. Hvað hét þessi kona?

Og hér eru svörin:

1.   Stalín.

2.   5.770 metrar, eða 5,7 kíló­metrar. Rétt telst því vera allt frá 5.470 til 6.070 metrar.

3.   Tómas Magnús Tómasson. Ekki er þó nauð­syn­legt að nefna Magnús.

4.   Bleyta eða vot­lendi.

5.   Franklin D. Roosevelt.

6.   Sól, stjarna. Alpa Centauri er sú sól sem næst okkur er, en það þarftu ekki endi­lega að vita.

7.   „Gagna­magnið“.

8.   Yamamoto.

9.   Boðefni í heil­anum/manns­lík­am­anum sem veldur vellíðan. Nóg er kalla það „efni“ en „vellíðan“ verður að koma fram eða eitt­hvað skylt fyr­ir­bæri!

10.   Rosa Parks. Hún neit­aði að standa upp fyrir hvítum far­þega í stræt­is­vagni, sem varð meiri­háttar mál í rétt­inda­bar­áttu svartra Banda­ríkja­manna.

Svörin við auka­spurn­ing­unum:

Turner mál­aði mál­verkið „Stríðs­skipið Tem­er­aire“.

Konan er Lady Gaga.

Hér er svo næsta þraut á undan.

En hér sú næsta á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár