Spurningaþraut 20: Númer hvað verður Karl konungur?

Spurningaþraut 20: Númer hvað verður Karl konungur?

Tuttug­asta  spurn­inga­þrautin, hér er hún nú komin.

Auka­spurn­ingar eru tvær eins og vana­lega:

Hvaða atburður er sýndur á mynd­inni að ofan?

En hver er dap­ur­legi ungi mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

Og aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.  Ef Karl Breta­prins verður ekki orð­inn elli­dauður áður en Elísabet 2. móðir hans hleypir honum að krún­unni, Karl númer hvað mun hann þá kall­ast?

2.   Hvað heitir egifski fram­herj­inn í fót­boltalið­inu Liverpool í Liverpool?

3.  Hver var mennta­mála­ráð­herra í hinni skamm­lífu rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar 2017?

4.   Hver var höf­uð­borg Vestur-Þýska­lands?

5.  Hvar fædd­ist söngv­ar­inn Freddy Mercury?

6.   Hver orti ljóðið „Til eru fræ“ sem Haukur Morthens söng svo eft­ir­minni­lega?

7.   Árið 1934 ákvað danski tré­smið­ur­inn Ole Kirk Christiansen að efna til sam­keppni um nafn á nýju fyr­ir­tæki sínu. Í verð­laun var flaska af víni sem hann brugg­aði sjálfur. Þegar til kom var hann ekki ánægður með neina til­lögu, svo hann veitti sjálfum sér verð­launin fyrir nafn sem hann barði saman sjálfur. Og vænt­an­lega sötr­aði hann úr vín­flösk­unni sjálfur. Hvað heitir fyr­ir­tækið hans?

8.  Skáldsagan „Salka Valka“ eftir Halldór Laxness er nefnd eftir aðal­per­sónu sög­unnar. En hvað heitir Salka Valka sög­unnar fullu nafni? Ég á við skírn­ar­nöfn hennar tvö, þið þurfið ekki að vita að hún var Jóns­dóttir.

9.   For­seta­kosn­ingar standa nú fyrir dyrum. Hvað hét sá fram­bjóð­andi sem kom næstur Guðna Th. Jóhann­essyni í kosn­ing­unum 2016?

10.  Hvað heitir frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins?

Þá eru hér svörin:

1.   3.

2.   Mohammed Salah.

3.   Kristján Þ. Júl­í­us­son.

4.   Bonn.

5.   Á eyj­unni Sansíbar. Sansíbar er nú hluti Tansaníu, svo Tansanía telst líka vera rétt svar, þótt eyjan hafi þá verið svo­nefndt breskt vernd­ar­svæði.

6.   Davíð Stef­áns­son.

7.  Lego.

8.   Salvör Val­gerður.

9.   Halla Tóm­as­dóttir.

10.  Rakel Þor­bergs­dóttir.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Myndin sýnir morðið á aust­ur­ríska erki­her­tog­anum Franz Ferdin­and í Sarajevo 28. júní 1914, en það hleypti af stað fyrri heims­styrj­öld­inni.

Og pilt­ur­inn eymd­ar­legi er Gavrilo Princip sem framdi ofan­greint morð á ofan­greindum erki­her­toga.

Og hér er svo þrautin frá í gær.

En hérna er sú næsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár