Spurningaþraut 19: Hver fer alltaf vonsvikin heim af Óskarshátíðinni?

Spurningaþraut 19: Hver fer alltaf vonsvikin heim af Óskarshátíðinni?

Nítjánda  spurn­inga­þrautin, það er ekki eftir neinu að bíða.

Auka­spurn­ingar eru tvær að venju:

Myndin hér að ofan prýddi hljóm­plötu sem kom út 1970. Hver eða hverjir gáfu út þá plötu?

Og hver er konan brosmilda milli spurn­ing­anna tíu og svar­anna?

Hér eru svo aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.  Hvaða þrír menn voru háls­höggnir á Íslandi 7. nóv­em­ber 1550?

2.   Hver skrif­aði ferða­bók­ina Dagbók frá Diafani og gaf út árið 1967?

3.  Augað mitt og augað þitt,

og þá fögru steina.

Mitt er þitt, og þitt er mitt,

þú veist hvað ég meina.

Hver orti þessa vísu?

4.   Hvað heitir for­stjóri Icelandair?

5.  Hvað hefur spænski fót­bolta­mað­ur­inn Gento unnið oftar en nokkur annar?

6.   Hvað heitir austasta ríki Banda­ríkj­anna á meg­in­landi Norður-Ameríku?

7.   Rit­höf­und­ur­inn J.K. Rowling er höf­undur bókanna um Harry Potter, eins og menn vita. Skírn­ar­nafn hennar er Joanne, en hvað þýðir þetta K?

8.   Hvað er stærsta stöðu­vatn á Íslandi?

9.   Árið 1795 hvarf ríki nokk­urt af landa­bréfum Evrópu sem fyrrum hafði stundum verið í hópi þeirra stærri. Það birt­ist ekki aftur á landa­bréf­unum fyrr en 123 árum síðar. Hvaða ríki var þetta?

10.  Kona nokkur hefur sjö sinnum verið til­nefnd til hinna svo­nefndu Ósk­arsverð­launa fyrir leik í aðal- og auka­hlut­verkum en aldrei fengið. Hver er hún?

Þá eru hér svörin:

1.   Jón Arason biskup og synir hans Björn og Ari.

2.   Jökull Jak­obs­son.

3.   Rósa Guð­munds­dóttir, Skáld-Rósa.

4.   Bogi Nils Bogason.

5.   Evr­ópu­bik­ar­inn / Meist­ara­deild Evrópu.

6.   Maine.

7.  Ekkert. Það er upp­finn­ing bóka­for­lags­ins, sem vildi fela að höf­und­ur­inn væri kona og taldi sterkara að nota tvo bók­stafi en einn. Í raun heitir hún fullu nafni bara Joanne Rowling.

8.   Þór­is­vatn. Það var næst­stærst en eftir að það var gert að miðl­un­ar­lóni er það yfir­leitt (ekki alveg alltaf samt) sjón­ar­mun stærra en Þing­valla­vatn, getur orðið 86-88 fer­kíló­metrar en Þing­valla­vatn er 83,7 fer­kíló­metrar.

9.   Pólland.

10.  Glenn Close.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

David Bowie gaf út plöt­una, sem hét „The Man Who Sold the World“.

Konan er Margaret Atwood rit­höf­undur, höf­undur „Sögu þern­unnar“ eða „The Handmaid’s Tale“.

Og hér er svo þrautin frá í gær.

En hér er sú tuttug­asta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár