Spurningaþraut 18: Langafi barinn, síðan hengdur, en hvar?

Spurningaþraut 18: Langafi barinn, síðan hengdur, en hvar?

Átjánda  spurn­inga­þrautin er þannig að varpað er fram tíu spurn­ingum og svörin eru hér fyrir neðan mynd af lit­ríkum leik­föngum.

Auka­spurn­ingar tvær:

Eftir hvern er verkið hér að ofan?

Og leik­föngin á mynd­inni að neðan, úr hvaða dóta­línu koma þau? Ég á þá við hið enska nafn.

Hér eru svo aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.  Langafi Borisar Johnsons for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands fékkst einnig við stjórn­mál. Árið 1922 var honum rænt af póli­tískum and­stæð­ingum og hann var síðan bar­inn til óbóta og loks hengdur. Hverrar þjóðar var þessi ógæfu­sami langafi?

2.   Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Avatar?

3.  Hvað heitir höf­uð­borg Norður-Kóreu?

4.   Covid-19 heitir sjúk­dóm­ur­inn sem nú hefur heim­inn í greipum sér. Eins og allir vita vísar talan 19 til ártals­ins 2019, en hvað þýðir „Covid“?

5.  Serena Williams er banda­rískur tennis­leik­ari sem hefur í mörg ár keppt að því að ná meti hinnar áströlsku Margaret Court yfir sigra á stór­mótum. Williams er nú aðeins einum sigri frá met­inu, en ætli hlé vegna Covid-19 far­ald­urs­ins komi ekki end­an­lega í veg fyrir að hún nái því? En hversu marga slíka sigra vann Margaret Court?

6.   Árið 1890 var drep­inn í Banda­ríkj­unum 59 ára gam­all karl­maður, sem hafði marga hildi háð. Óhætt er að segja að með honum hafi lokið ákveðnu tíma­bili í sögu þjóðar hans. Maðurinn hét Thatanka Yotake, en er reyndar kunn­ari undir gjör­ó­líku nafni, sem er þá hvað?

7.   Í eina tíð bjuggu ljón víða um Evrópu og Asíu, auk núver­andi heim­kynna sinna. Nú lifa þau villt aðeins í einu landi utan Afríku og það er …?

8.   Sjón­varps­þætt­irnir „Tiger King“ hafa farið sig­ur­för um heim­inn síð­ustu vikur. Hvað kall­ast sá lit­ríki dýra­garðs­hald­ari sem þætt­irnir snú­ast um?

9.   Ef maður keyrir frá Höfn í Horna­firði austur og norður, hvað heitir fyrsti þétt­býl­is­stað­ur­inn sem maður kemur að?

10.  Eitt lag­anna, sem Ísland hefur sent í Eurovision, bar franskt nafn: „Je ne sais quoi“ sem þýðir nokkurn veg­inn „Ég veit ekki hvað“. Hver söng þetta fyrir okkur í loka­keppn­inni, sem þá var í Osló?

Þá eru hér svörin:

1.   Hann var tyrk­neskur.

2.   James Cameron

3.   Pjongj­ang.

4.   Þetta er skamm­stöfun: COrona-VIrus-Dise­ase, eða „kór­óna­veiru­s­veiki“.

5.   24.

6.   Sitting Bull af þjóð Lakota. Indíána­höfð­ingi sem sé.

7.  Indlandi.

8.   Joe Exotic.

9.   Djúpi­vogur.

10.  Hera, eða Hera Björk.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Marcel Duchamp (1887-1968)  mál­aði þessa útgáfu af Mónu Lísu.

Hest­arnir til­heyra dóta­lín­unni „My Little Pony“.

Og hér er svo þrautin frá í gær.

Og hér er 19. þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár