Spurningaþraut 17: Hver var maðurinn með egglaga höfuðið?

Spurningaþraut 17: Hver var maðurinn með egglaga höfuðið?

Sautj­ánda spurn­inga­þrautin er þannig að varpað er fram tíu spurn­ingum og svörin eru hér fyrir neðan mynd af fugli einum.

Auka­spurn­ingar tvær:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

Og hver er fugl­inn?

Hér eru svo aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Hvað heitir það lag Megasar þar sem hann setur sig í spor manns sem fer með vin­stúlku sinni í göngu­för upp að Rauð­hólum, þar sem hann myrðir hana síðan?

2.   Hver leik­stýrði bíó­mynd­inni/sjón­varps­þátt­unum „Fanny og Alex­ander“?

3.  Hvað heitir höf­uð­borg Póllands?

4.   Rana­valona 1. hét drottn­ing ein sem í byrjun 19. aldar ríkti með mik­illi hörku yfir ríki sínu. Hún er kunn fyrir grimmi­lega stjórn, ægi­legar refs­ingar og stöðug stríðs­á­tök. Sumir telja að íbúa­fjöld­inn í rík­inu hafi minnkað um helm­ing meðan hún sat við stjórn­völ­inn. En hvaða ríki stýrði Rana­valona 1.?

5.  Árið 1972 kom Boris Spassky heims­meist­ari í skák til Íslands og háði ein­vígi við Robert Fischer um æðstu met­orð skák­list­ar­innar. Einn af helstu aðstoð­ar­mönnum hans reynd­ist eiga svo­lítið sam­eig­in­legt með einum dygg­asta hers­höfð­ingja Napól­e­ons Frakka­keis­ara, þó svo meira en 150 ár skildu milli þeirra. Hvað áttu þeir sam­eig­in­legt?

6.   Hverjum er svo lýst: „Hann var alls ekki meira en 1,64 senti­metrar á hæð en bar sig mjög höfð­ing­lega. Höfuð hans var nákvæm­lega egg­laga og hann hall­aði gjarnan undir flatt. Yfir­skegg hans var einkar vand­lega snyrt. […] Hann var raunar svo mik­ill snyrtip­inni í klæðn­aði að það var ótrú­legt; ég hugsa að eitt ryk­korn hefði valdið honum meiri þján­ingum en skotsár.“

7.   Hvað heitir elsta dóttir Viktoríu krón­prinsessu Sví­þjóðar, átta ára gömul stúlka sem vænt­an­lega verður drottn­ing Sví­þjóðar í fyll­ingu tím­ans?

8.  Í hvaða borg er hús eitt hátt og mikið,sem kallað er „Gler­brotið“?

9.  Nóbels­verð­launin eru veitt í Svíþjóð og Noregi fyrir ýmis afrek, en svo eru líka til Alfred Nobels-verð­launin. Þau hafa verið veitt síðan 1929 af banda­rísku félagi sem heiðrar unga afreks­menn á ákveðnu mennta­sviði, ekki þó einu þeirra sem hin eig­in­legu Nóbels­verð­laun eru veitt fyrir. Banda­ríska félagið fékk nafn Alfreds Nóbels bara lánað á verð­laun sín, en reyndar  ekki alveg að ástæðu­lausu. Fyrir afrek á hvaða sviði eru Alfred Nobels-verð­launin veitt?

10.   Hver er sú kona sem hefur selt fleiri hljóm­plötur á hinum mik­il­væga Banda­ríkja­mark­aði en nokkur kona önnur, eða 70 millj­ónir, þótt Mariah Carey sæki nú hart að henni á toppnum?

Hér eru svörin:

1.   „Ást­ar­saga“ af plöt­unni Loftmynd.

2.   Ingmar Bergman.

3.   Varsjá.

4.   Madaga­skar.

5.   Þeir hétu báðir Nei, þótt nafn Eistans Ivo Nei sé yfir­leitt skrifað með ein­földu með lat­ínu­letri, en nafn Michels Ney mar­skálks með yfsiloni.

6.   Hercule Poirot, sögu­hetju Agötu Christie.

7.   Estelle.

8.   London.

9.   Verk­fræði. Nobel var jú bæði efna­fræð­ingur og verk­fræð­ingur.

10.  Barbra Streisand.

Og svörin við auka­spurn­ingum:

Marilyn Monroe og albatoss.

Svo er gátan frá því gær hérna.

En sú 18., hún leyn­ist hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár