Spurningaþraut 15: Hver er 孔子 og hvað er hæsta tré á Íslandi?

Spurningaþraut 15: Hver er 孔子 og hvað er hæsta tré á Íslandi?

Fimmt­ánda spurn­inga­þrautin: Tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd úr þekktri teikni­mynd.

Auka­spurn­ingar tvær:

Hver er karl­mað­ur­inn á mynd­inni að ofan?

Og úr hvaða kvik­mynd er myndin hér að neðan?

Hér eru svo aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Kínverji nokkur, fæddur árið 551 fyrir Krist, heitir 孔子, sem hljóð­ritað á lat­neskt letur er skrifað Kǒng Qiū. Þessi spek­ingur er þó kunn­ari undir öðru nafni hér á Vest­ur­löndum. Hvað er það?

2.   Hvað heitir trommu­leik­ar­inn í The Rolling Stones?

3.   Hvað heitir háls­inn milli Eyja­fjalla­jök­uls og Mýr­dals­jök­uls?

4.  Árið 1805 stýrði Nelson flota­for­ingi breska flot­anum til sig­urs gegn Frökkum og Spán­verjum, en sjálfur féll hann um borð í skipi sínu á sig­ur­stundu. Skipið er enn varð­veitt í höfn­inni í Portsmouth og var vin­sæll áfanga­staður ferða­manna, meðan þeir voru enn og hétu. Hvað heitir þetta skip?

5.   Árið 1980 kom út mynd­skreytt barna­bók eftir nýjan höf­und, bókin hét „Allt í plati“. Höf­und­ur­inn hefur síðan gefið út eina til þrjár bækur á hverju ári, flestar ríku­lega mynd­skreyttar, en einna síð­astar eru þrjár spenn­andi bækur sem ger­ast á Skugga­skeri. Hvað heitir þessi höf­undur?

6.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Tékk­landi?

7.   Fyrir hverja situr Björn Leví Gunn­ars­son á þingi?

8.   Hver samdi þekktasta lagið sem sungið er við Maí­stjörnu Halldórs Laxness?

9.  Hvaða tón­list­ar­maður er þekkt­astur fyrir lagið „Bad Guy“?

10.  Hæsta tré á Íslandi nálg­ast óðum 30 metra hæð. Af hvaða trjá­teg­und er það?

Þá eru þau hér þau hin tíu svör:

1.   Kon­fús­íus.

2.   Charlie Watts.

3.   Fimm­vörðu­háls.

4.   Victory.

5.   Sigrún Eldjárn.

6.   Prag.

7.   Pírata.

8.   Jón Ásgeirs­son.

9.   Billie Eilish.

10.  Sitka­greni.

Auka­spurn­ing­arnar:

Karlinn er vita­suld Garry Kasparov, fyrr­ver­andi heims­meist­ari í skák.

Teikni­myndin er „The Jungle Book“ eða „Skóg­ar­líf“ frá 1967. Ef ein­hver segir „Móglí“ má líka gefa rétt fyrir það.

Næstu spurn­inga­þraut á undan er svo einmitt hérna að finna.

En þá sext­ándu hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár