Spurningaþraut 14: Hver átti „dauðu gæludýrin“ og hver hið orðum prýdda brjóst?

Spurningaþraut 14: Hver átti „dauðu gæludýrin“ og hver hið orðum prýdda brjóst?

Fjórt­ánda spurn­inga­þrautin: Tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd af orðum prýddu brjósti.

Auka­spurn­ingar tvær:

Hvað kall­ast fisk­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

Og hver hefur þennan öfl­uga kjálka og á svo margar orður sem blika á mynd­inni hér ögn neðar?

En hér eru fyrst spurn­ing­arnar tíu:

1.  Hvaða sýsla er milli Árnes­sýslu og Vestur-Skafta­fells­sýslu?

2.   Fyrir rétt tæpu ári, eða síðla í júní 2019, var banda­ríski einnar stjörnu hers­höfð­ing­inn L.L.Yeager skip­aður yfir 40. fót­göngu­liða­sveit Banda­ríkja­hers, fræga her­deild sem barist hefur í mörgum styrj­öldum fyrir Banda­ríkin. Þótt orð­spor Yeagers innan hers­ins væri gott, þá vakti þessi skipan samt tölu­verða athygli, sem sé að slíkur hers­höfð­ingi skyldi skip­aður yfir raun­veru­lega bar­daga­sveit? Hvað var merki­legt við skipan Yeagers?

3.  Hver er Elena Greco, sem er ítölsk þótt nafnið virð­ist kannski grískt?

4.  Spænska veikin, hræði­leg drep­sótt sem kom upp 1918, var kölluð svo vegna þess að framan af var mest fjallað um far­sótt­ina í spænskum blöðum vegna þess að blöð í flestum öðrum Evr­ópu­löndum voru rit­skoðuð vegna heims­styrj­ald­ar­innar fyrri. Í raun var upp­runi far­sótt­ar­innar ekki á Spáni. Í hvaða landi er spænska veikin yfir­leitt talin hafa verið upp­runnin?

5.   Hver skrif­aði bæk­urnar „Horfðu á mig“ og „Ég man þig“?

6.  Hvað heitir for­seti Frakk­lands?

7.  Róm­verjar undir for­ystu Juliusar Caesars her­námu Gallíu eða Frakk­land tæpum 50 árum fyrir Krists burð og þurftu mikið að hafa fyrir því. Síðan gekk á ýmsu, og lífið var til dæmis ekki auð­velt fyrir róm­versku dát­ana í setu­liðum virk­is­bæj­anna Totorum, Aquarium, Laudanum and Compendium. Hvers vegna ekki?

8. Tón­list­ar­maður einn frá Banda­ríkj­unum fædd­ist 1992 og hefur meðal ann­ars gefið út plötu um „dauðu gælu­dýrin sín“ eða svo mætti að minnsta kosti ætla af nafni plöt­unnar. Næsta plata tón­list­ar­manns­ins hét sak­leys­is­legra nafni eða „Younger Now“ árið 2017. Hver er þessi tón­list­ar­maður?

9.   „Pelle sig­ur­veg­ari“ hét á íslensku kvik­mynd sem frum­sýnd var fyrir 33 árum. Hver var leik­stjóri hennar?

10.  Hver er núver­andi heims­meist­ari í Formúlu 1 kappakstri?

Þá eru þau hér þau hin tíu svör:

1.   Rang­ár­valla­sýsla.

2.   Laura L. Yeager er fyrsta konan sem skipuð er hers­höfð­ingi yfir full­búna bar­daga­sveit.

3.   Helsta sögu­hetjan í Napólí-bálki rit­höf­und­ar­ins Elenu Ferrante um fram­úr­skar­andi vin­konu og fleira.

4.   Banda­ríkj­unum.

5.   Yrsa Sig­urð­ar­dóttir.

6.   Emmanuel Macron.

7.    Vegna þess að þeir þurftu að gæta Gaul­verja­bæjar, þar sem Ástríkur og Stein­ríkur (Asterix og Obelix) bjuggu og fóru jafnan sínu fram.

8.   Miley Cyrus.

9.   Billie August.

10.  Lewis Hamilton.

Auka­spurn­ing­arnar:

Fisk­ur­inn heitir hval­háfur eða hval­há­karl.

Sá orðumprýddi er rúss­neski mar­skálk­ur­inn Georgí Sjúkov.

Ýmsir eiga svo eftir að svara næstu spurn­inga­þraut á undan, en örvæntið eigi, því hana er að finna hér.

Og sú fimmt­ánda, hún er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár