Spurningaþraut 12: Hvaða dýr er þetta og hver er 6. kóngur Evrópu?

Spurningaþraut 12: Hvaða dýr er þetta og hver er 6. kóngur Evrópu?

Tólfta spurn­inga­þrautin er eins og alltaf, tíu spurn­ingar og svörin eru svo hér fyrir neðan ljós­mynd af frægu kenni­leiti.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju:

Hvaða snotra dýr er á mynd­inni hér að ofan?

Í hvaða borg er þetta kenni­leiti?

En hér eru spurn­ing­arnar tíu:

1.  Hvað heitir yngsti sonur Donalds Trumps?

2.   Hvað heitir spá­konan í Eyja­bókum Einars Kára­sonar?

3.  Banda­rískur tón­list­ar­maður sem sett­ist að á Íslandi gaf út lagið The Greatest Motherfucker sem opin­ber­lega hét þó víst bara GMF. En hvað heitir tón­list­ar­mað­ur­inn?

4.  Í Evrópu sitja kóngar nú í hásæti í Belgíu, Hollandi, Noregi, Svíþjóð og á Spáni. Svo ber reyndar einn evr­ópskur þjóð­höfð­ingi líka tit­il­inn „kóngur“ í sínu ríki, þótt sá tit­ill sé mjög lítið not­aður og flestir þekkja þennan þjóð­höfð­ingja undir allt öðrum emb­ætt­is­titli. Hver er þessi „kóngur“?

5.   Mjaldur er með­al­stór tann­hvalur sem vekur ævin­lega athygli fyrir sinn hvíta lit. Hann á náfrænda í hópi tann­hvala sem þykir jafn­vel enn sér­kenni­legri í útliti. Hvaða hvalur er það?

6.   Hver var ráð­inn nýr útvarps­stjóri um dag­inn?

7.   Hvaða mynd­list­ar­kona mál­aði vissu­lega margt og mikið um ævina en er þó allra þekkt­ust fyrir öfl­ugar sjálfs­myndir sínar?

8.  Hvað heitir reiki­stjarnan sem næst er sól­inni okkar?

9.   Með hvaða körfu­boltaliði spil­aði Michael Jordan lengst af?

10.  Hvaða fyr­ir­tæki stofn­aði Pálmi Jónsson árið 1959?

Þá eru hér þau hin tíu svör:

1.   Barron.

2.  Karólína.

3.  John Grant.

4.   Páfinn í Róm. Hann ber hinn form­lega titil „Konungur hins kirkju­lega ríkis“ auk þess að vera „biskup yfir Róm“.

5.  Náhvalur með sína einu löngu tönn langt fram úr skolt­inum.

6.  Stefán Eiríks­son.

7.  Hin mexíkóska Frida Kahlo.

8.  Merkúr.

9.  Chicago Bulls.

10.  Hagkaup.

Auka­spurn­ing­arnar:

Dýrið er vit­an­lega tapír.

Og Brand­en­borg­ar­hliðið er í Berlín.

Næstu spurn­inga­þraut á undan er svo hérna að finna.

Næsta þraut á eftir, sú 13., hún er hins vegar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár