Spurningaþraut 11: Hver bakaði þessa köku, og þriðja stærsta eyja Grikklands

Spurningaþraut 11: Hver bakaði þessa köku, og þriðja stærsta eyja Grikklands

Ellefta spurn­inga­þrautin er sams konar og hingað til, tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan ljós­mynd af vin­sælli kvik­mynda­leikkonu.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju: Á plötu­umslagi hvaða hljóm­sveitar er þessi ljóm­andi girni­lega kaka hér að ofan, og hver er svo leik­konan?

1.  Hvað heitir höf­uð­borg Skotlands?

2.   Gruoch hét drottn­ing ein. Fátt er vitað um hana í lif­anda lífi en frægð hennar bygg­ist á lista­verki einu þar sem hún kemur fyrir og er kunn­ust fyrir að þvo blóð af höndum sér, eða reyna það alla vega. Hvað nefn­ist það lista­verk?

3.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands? Hér dugar ann­að­hvort for­nafn eða eft­ir­nafn þessa kven­skör­ungs.

4.   Sú góða nýsjá­lenska kona er upp­alin í trú­ar­söfn­uði sem varð til á þriðja ára­tug 19. aldar í Banda­ríkj­unum. Þá kvaðst tæp­lega tví­tugur bónda­sonur hafa fundið merki­lega bók, sem varð und­ir­staða safn­að­ar­ins. Hinn nýsjá­lenski for­sæt­is­ráð­herra hefur fyrir löngu yfir­gefið söfn­uð­inn, en hvað er þessi söfn­uður kall­aður?

5.   Krít er stærst grísku eyj­anna, eins og allir vita. Næst­stærst er eyja sem nefn­ist Evbóea en hún er svo nærri landi að henni svipar meira til skaga en eyju. En hver er þriðja stærsta gríska eyjan?

6.   Hvaða dýr er teikni­mynda­sögu­fígúran Grettir - á ensku Garfield?

7.   Hvaða lið varð enskur meist­ari í fót­bolta karla í fyrra­vor?

8.  En í fót­bolta kvenna í sama landi, Englandi?

9.   Hvað hét fyrsta skip Eim­skipa­fé­lags Íslands?

10.  Hvað heitir rit­ari yfir­manns bresku leyni­þjón­ust­unnar í James Bond-kvik­mynd­unum? Eft­ir­nafnið dugar.

Þá koma svörin hér:

1.   Edinborg.

2.  Makbeð, leik­rit eftir William Shakespe­are. Lafði Makbeð er ekki nefnd á nafn í leik­rit­inu en kona hins raun­veru­lega Makbeðs ( eða Mac Bethads mac Findlaíchs) hét Gruoch.

3.  Jacinda Ardern.

4.   Mormónar.

5.  Lesbos.

6.  Köttur.

7.  Manchester City.

8.  Arsenal.

9.  Gullfoss.

10.  Moneypenny.

Auka­spurn­ing­arnar: Hljóm­sveitin er The Rolling Stones, þetta er hluti af umslagi plöt­unnar Let It Bleed.

Kvik­mynda­leik­konan heitir Julia Roberts.

Næsta spurn­inga­þraut á undan er hérna.

En sú tólfta kemur hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár