Spurningaþraut 10: Hvaða keisara giftist hasarkvendið Messalína?

Spurningaþraut 10: Hvaða keisara giftist hasarkvendið Messalína?

Tíunda spurn­inga­þrautin er sams konar og hingað til, tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd­ina af atkvæða­konu einni mik­illi.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju: Úr hvaða rosknu íslensku kvik­mynd er myndin að ofan, og hver er konan?

1.  Í hring­iðu hvaða atburða var ræðu­skör­ung­ur­inn Georges Danton?

2.   Í hvaða kirkju flutti séra Jón Stein­gríms­son „eld­messu“ sína árið 1783?

3.  Hvað heitir sú kona sem nú stendur næst rík­is­erfðum á Bret­landi?

4.   Fyrir hvaða hlut­verk er leik­konan Emilia Clarke lang, lang, lang­fræg­ust?

5.   Hvað heitir sundið milli Kaup­manna­hafnar í Danmörku og Málm­eyjar í Svíþjóð?

6.  Milli hvaða tveggja reiki­stjarna í sól­kerf­inu er hið svo­nefnda „smá­st­irna-“ eða „loft­steina­belti“?

7.  Hvað hét for­seta­fram­bjóð­andi repúblik­ana í Banda­ríkj­unum 2012?

8. Einhvern tíma verður frum­sýnd nýjasta James Bond-kvik­myndin, No Time to Die. Hvað heitir leik­ar­inn, sem þá mun leika Bond, James Bond í fimmta og vænt­an­lega síð­asta sinn?

9.  Messa­lína þótti eitt mikið hasarkvendi og er kunn fyrir að hafa farið í keppni í ákveðnum aðgerðum við dug­mestu port­kon­una í Rómaborg hinni fornu. Sumum þótti frekar ósmekk­legt af henni að taka þátt í slíkri keppni, því Messa­lína var jú keis­ara­ynja í rík­inu. Maður hennar keis­ar­inn þótti reyndar hálf­gerður auli stundum, en hann var nú keis­ari samt. Hvað hét hann?

10.  Hver flýgur eða feyk­ist alla vega um á regn­hlíf í leik­rit­inu góða, Dýrin í Hálsa­skógi?

Þá koma svörin hér:

1.   Frönsku bylt­ing­ar­innar.

2.  Kirkj­unni á Kirkju­bæj­ar­klaustri.

3.  Karlotta prinsessa, dóttir Vil­hjálms prins Karls­sonar, her­toga af  Cambridge. Hún hélt upp á fimm ára afmælið sitt 2. maí, Karlotta. Stúlkan er sú fjórða í erfða­röð­inni á eftir Karli prinsi afa sínum, Vil­hjálmi föður sínum og Georg eldri bróður sínum.

4.   Daenerys Tar­g­ar­yan úr Game of Thrones.

5.  Eyr­ar­sund.

6.  Júpíers og Mars.

7.   Mitt Romney.

8.  Daniel Craig.

9. Claudius hét hann, heilla­karl­inn.

10.  Amma mús.

Rétt svör við auka­spurn­ing­unum tveim:

Kvik­myndin er „Óðal feðr­anna“ eftir Hrafn Gunn­laugs­son en konan með sótt­varn­ar­grímuna er Nancy Pelosi, þing­maður vestan hafs og for­seti full­trú­ar­deild­ar­innar.

Næsta spurn­inga­þraut á undan, sú níunda, hún er hérna.

En sú næsta og ell­efta - hana má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár