Spurningaþraut 9: Hvaða fjall er þetta, og hvað nefndist þýski herinn í Stalíngrad?

Spurningaþraut 9: Hvaða fjall er þetta, og hvað nefndist þýski herinn í Stalíngrad?

Níunda spurn­inga­þrautin er sams konar og hingað til, tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd­ina af karli einum.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju:

Hvað heitir fjallið hér að ofan?

Og hver er karl­inn á mynd­inni?

1.   Dave Greenfield hljóm­borðs­leik­ari rokk­hljóm­sveit­ar­innar The Stranglers lést í gær. Hvað hét söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar fyrstu 15 árin eða svo?

2.  Í hvaða stjörnu­merki er Vigdís Finn­boga­dóttir fyrrum for­seti?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Serbíu?

4. Hugtakið pí eða π lýsir sam­bandi ummáls og þver­máls hrings. Hvaða tala er pí? Ekki þarf að nefna nema einn tölu­staf og tvo aukastafi.

5.   Árið 1910 var stofnað dag­blað í Reykja­vík. Þótt á ýmsu hafi gengið um eig­endur og útgáfu má segja að arf­taki þess komi enn út. En hvað hét blaðið sem þarna kom fyrst út?

6.  Hver lék stærsta kven­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Von­ar­stræti?

7.  Móhumla, hús­humla og garð­humla eru þrjár náskyldar dýra­teg­undir sem allar búa á Íslandi. Móhumla hefur senni­lega búið hér frá lokum ísaldar en hinar tvær teg­undir komu miklu síðar - garð­humla um 1960 en hús­humla um 1980 og hefur nú nærri rutt garð­humlu úr vegi. Hún er líka sú af þessum teg­undum sem flestir þekkja, enda tíður gestur í húsum, eins og nafnið bendir til. Til hvaða sam­eig­in­legu dýra­teg­undar flokk­ast þær móhumla, garð­humla og hús­humla?

8.  Söngkona ein er ein­hver sú vin­sælasta í heimi, en hún hefur gefið út sjö plötur sem allar hafa selst í millj­óna­vís um ver­öld víða. Þar á meðal eru plötur sem nefn­ast Fearless, Speak Now, Red, 1989, Reputation og sú nýjasta sem kom út í fyrra og heitir Lover. Hvað heitir söng­konan?

9.  Númer hvað var þýski her­inn sem lok­að­ist inni í Stalín­grad í vetr­ar­byrjun 1942 og varð að lokum að gef­ast upp?

10.  Í bókum og bíó­myndum um Bangsímon segir meðal ann­ars frá Jakobi, vini dýr­anna í Hund­rað­ekru­skógi. Pilt­ur­inn heitir að minnsta kosti Jakob í íslensku þýð­ing­unum, en hvað heitir hann á frum­mál­inu ensku?

Þá koma hér svörin:

1.   Hugh Cornwell.

2.  Hrútnum.

3.  Belgrad.

4.  3,14.

5.  Vísir.

6.  Hera Hilmar.

7.  Hun­angs­fl­ugur. „Flugur“ dugar ekki.

8.  Taylor Swift.

9.  Þetta var Sjötti her­inn.

10.  Christopher Robin.

Svör við auka­spurn­ingum:

Fjallið er Kirkju­fell.

Karlinn er Robert Redford, kvik­mynda­stjarna.

Næsta spurn­inga­þraut á undan er hérna. En sú næsta, sú tíunda, hún er aptur á móti hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár