Spurningaþraut 8: Hvað gerðist í Tjeljabinsk?

Spurningaþraut 8: Hvað gerðist í Tjeljabinsk?

Áttunda spurn­inga­þrautin er sams konar og hingað til, tíu spurn­ingar og svörin eru hér fyrir neðan mynd­ina af karli einum ungum.

Auka­spurn­ingar eru svo tvær að venju: Úr hvaða kvik­mynd er myndin að ofan og hver er svo ungi karl­inn hér að neðan?

1.   Hvað heitir utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna?

2.   Stöðu­vatn nokk­urt var til skamms tíma hið fjórða stærsta í ver­öld­inni en á síð­ustu ára­tugum hefur það nálega horfið, eftir að ánum, sem í það féllu, var í stórum stíl veitt í áveitur. Hvaða vatn er þetta - eða var?

3. Hvaða efni­legi fót­bolta­kappi þurfti um 12 ára aldur að leggja land undir fót og fara til liðs í öðru landi, af því liðin í heima­landi hans höfðu ekki efni á að borga rán­dýra horm­óna­með­ferð, sem hann þurfti á að halda til að stækka eðli­lega?   

4.   Aðeins ein kona hefur verið for­sæt­is­ráð­herra Ísraels og það er langt síðan. Hvað hét hún?

5.  Í hvaða landi er hinn víð­frægi Coronabjór upp­runn­inn?

6.  „Hvað dvelur Orminn langa?“ spyrja menn stundum þegar þá er farið að lengja eftir ein­hverju. Hver var þessi ormur?

7.  Hver er nýr rík­is­lög­reglu­stjóri?

8.  Ráðherra í rík­is­stjórn Íslands vann einu sinni bæði fyrstu og önnur verð­laun í sam­keppni um örsögur sem félag nokk­urt hélt. Hver var þessi sig­ur­sæli ráð­herra (sem var reyndar ekki í emb­ætti þá stund­ina)?

9.  „Megas“ hét fyrsta plata Megasar. Hvað hét sú næsta?

10.  Tjelja­binsk heitir borg ein í Rúss­landi á mótum Mið-Asíu og Síberíu. Þann 15. febr­úar 2013 gerð­ist í nágrenni borg­ar­innar atburður sem vakti heims­at­hygli og jafn­vel nokkurn ugg. Hver var hann?

Þá koma hér svörin:

1.   Mike Pompeo - síð­ara nafnið dugar

2.  Aral-vatn

3.  Lionel Messi

4.  Golda Meir

5.  Mexíkó

6.  Herskip, lang­skip, vík­inga­skip - skip Ólafs Tryggva­sonar Nor­egs­kon­ungs, óvinir hans biðu þess að það birt­ist svo þeir gætu ráð­ist til atlögu, en „skip“ nægir alveg sem rétt svar

7.  Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir

8.  Katrín Jak­obs­dóttir - félagið var Mímir, félag íslensku­fræði­nema við Háskóla Íslands

9.  Milli­lend­ing

10.  Stór loft­steinn sprakk í 30 kíló­metra hæð yfir borg­inni

Auka­spurn­ing­arnar: Kvik­myndin er „Doctor Strang­elove, or How I Learned to Stop Worrying and Love the Bomb“ en karl­inn er Nelson Mandela, síðar for­seti Suður-Afríku.

Næsta spurn­inga­þraut á undan er hérna. Sú næsta er hins vegar hér.

Þá er hér að gamni mynd af spreng­ing­unni í Tjelja­binsk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár